Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

3D skönnun og endurgerð hluta

Lærðu að skanna raunverulega hluti, umbreyta þeim í nákvæm þrívíddarlíkön og endurgera eða hanna íhluti út frá þeim.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað iðnaðarmönnum, hönnuðum, tæknifólki, viðhaldsaðilum, nemendum og öðrum sem vilja nýta 3D skönnun til að endurgera, breyta eða hanna íhluti fyrir framleiðslu, viðgerðir eða þrívíddarprentun.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á helstu aðferðum við 3D skönnun og geti undirbúið hluti fyrir skönnun, unnið úr skanngögnum og endurskapað eða hannað íhluti út frá þeim.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Helstu aðferðir við 3D skönnun, meðal annars leysiskönnun, structured light og photogrammetry.
  • Styrkleika og takmarkanir mismunandi skannaðferða og val á aðferð eftir verkefnum.
  • Undirbúning hluta fyrir skönnun og þá þætti sem hafa áhrif á nákvæmni niðurstaðna.
  • Algeng mistök við undirbúning og framkvæmd 3D skönnunar.
  • Skönnun raunverulegra hluta með 3D skanna.
  • Photogrammetry með snjallsíma, t.d. með Polycam.
  • Notkun skrifstofuskanna til að mæla og staðsetja einfaldari flata hluti.
  • Gerð þrívíddarlíkans út frá 2–3 ljósmyndum og mælingum með skíðmáli, án hefðbundins 3D skanna.
  • Úrvinnslu skanngagna og áframhaldandi vinnu með þau í CAD-hugbúnaði.
  • Greiningu hluta í einföld grunnform (primitives) og endurteikningu þeirra í Onshape eða Fusion.
  • Hönnun nýs íhlutar sem passar við skannaðan hlut, þrívíddarprentun hans og sannprófun á passun.
  • Muninn á Fusion og Blender og hvenær hvort forrit hentar, meðal annars fyrir nákvæma vélhönnun og frjálsa líkanagerð.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja helstu aðferðir við 3D skönnun og útskýra helstu kosti þeirra og takmarkanir.
  • Velja skannaðferð sem hentar viðfangsefni hverju sinni.
  • Undirbúa hlut fyrir skönnun með tilliti til nákvæmni og gæða skanngagna.
  • Framkvæma einfalda 3D skönnun og vinna úr skanngögnum.
  • Búa til þrívíddarlíkan út frá ljósmyndum og mælingum.
  • Greina skannaðan hlut niður í grunnform og endurteikna hann í CAD-hugbúnaði.
  • Hanna íhlut sem passar við skannaðan eða endurgerðan hlut.
  • Prenta út hannaðan íhlut og sannreyna passun hans.
  • Greina á milli notkunarmöguleika Fusion og Blender og velja hugbúnað eftir eðli verkefnis.

Aðrar upplýsingar:

Engar sérstakar forkröfur eru gerðar, en grunnþekking á tölvunotkun og áhugi á hönnun eða þrívíddartækni er kostur.

Allur nauðsynlegur búnaður, 3D skannar og hugbúnaður eru til staðar á námskeiðinu. Þátttakendur vinna verkleg verkefni og fá tækifæri til að skanna hluti, vinna úr gögnum og prófa eigin hönnun með þrívíddarprentun.

Starts
9. Nov 2026
Type
On site
Timespan
3 times
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories