Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Vinna í lokuðu rými

Vinna í lokuðu rými krefst nákvæms undirbúnings og öryggis – netnámskeið sem veitir nauðsynlega þekkingu og innsýn.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er fyrir alla sem vinna, skipuleggja eða bera ábyrgð á vinnu í lokuðu rými, t.d. við tanka, holræsakerfi, þrýstihylki, brunna og aðra innilokaða staði.

Markmið:

Að þátttakendur öðlist skilning á hættum tengdum vinnu í lokuðu rými, læri að framkvæma áhættumat, þekki nauðsynlegan öryggisbúnað og neyðaráætlanir og geti undirbúið örugga framkvæmd vinnu við slíkar aðstæður.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hvað felst í vinnu í lokuðu rými
  • Lög og reglugerðir
  • Dæmi um slys og forvarnir
  • Áhættumat og neyðaráætlun
  • Hlutverk viðbragðsaðila
  • Hlífðarbúnaður og loftræsting

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta greint hvað felst í vinnu í lokuðu rými
  • Þekkja helstu hættur og forvarnir
  • Skilja mikilvægi öryggisráðstafana og viðbragðsáætlana
  • Kunna að beita réttu verklagi og öryggisbúnaði við slíka vinnu

Aðrar upplýsingar:

Námskeiðið er kennt í fjarfundi gegnum Google Meet. Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum og sýndur er fjöldi mynda af raunverulegum aðstæðum. Einnig er farið í gegnum stutt myndband byggt á raunverulegu slysi. Í lok námskeiðsins eru umræður með þátttakendum.

Hefst
22. júní 2026
Tegund
Fjarnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar