Starfsmótun
Starfsmótun
Starfsmótun

Viltu njóta þín betur í vinnunni?

Starfsmótun: Árangursrík leið til að njóta sín í starfi!
VINNUSTOFA 19. maí kl. 9:00 - 12:00
  • Vinnustofan er ætluð öllum sem eru tilbúnir að rýna í eigin störf og vilja taka markviss skref til að hlúa að eign vellíðan í starfi.

  • Vinnustofan hentar jafnt stjórnendum, sérfræðingum sem og almennu starfsfólki.

  • Þátttakendur fá tækifæri til að rýna í eigið starf og taka fyrstu skrefin í átt að aukinni ánægju og árangri í starfi

  • Vinnustofan byggir á gagnreyndum rannsóknum

Vinnustofan sameinar fræðslu, umræður og verkefnavinnu með það markmið að styðja þátttakendur í að efla eigin vellíðan í starfi. Farið er yfir helstu þætti í starfsumhverfinu sem hlúa að vellíðan. Einnig er ítarlega fjallað um starfsmótun (e. job crafting), fræðin um það hvað hver og einn getur gert til að efla eigin ánægju í starfi, en starfsmótun bæði kemur á og eykur helgun í starfi (e. work engagement) og virkar þannig sem forvörn við kulnun í starfi.
 
Markmið vinnustofunnar:
  • auka skilning á verndandi þáttum í starfsumhverfinu
  • efla sjálfskoðun og meðvitund um eigin líðan í starfi
  • gefa þátttakendum hagnýt verkfæri sem nýtast í daglegu starfi
Nánari upplýsingar á starfsmotun.is
Hefst
19. maí 2026
Tegund
Staðnám
Verð
27.900 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar