Hönd í hönd ráðgjöf
Hönd í hönd ráðgjöf
Hönd í hönd ráðgjöf

Viltu læra að vera doula?

Langar þig að starfa í tengslum við fæðingar og fræðslu til verðandi og nýrra foreldra?

Doula er kona sem styður aðrar konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu og í fæðingu. Stuðningurinn felst í nærveru, fræðslu, hvatningu og hlýju – „mothering the mother“.

Doulunámið hentar öllum sem hafa brennandi áhuga á fæðingarferlinu og vilja öðlast dýpri skilning og færni í fæðingarstuðningi. Í náminu er lögð áhersla á fjölbreyttar leiðir til stuðnings, samskipti, undirbúning fyrir fæðingu og þarfir fjölskyldna á þessu mikilvæga tímabili.

Námið getur verið fyrsta skrefið að gefandi starfi sem doula eða frábær viðbót við fyrri menntun og reynslu.

Ef þú brennur fyrir því að styðja konur og fjölskyldur á einu stærsta umbreytingarskeiði lífsins gæti doulunámið verið fyrir þig.

Næsta doulunám hefst 12. september 2026.
Nánari upplýsingar og skráning á doula.is.

 

Hefst
12. sept. 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Verð
159.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar