
Dokkan

Uppsagnir og starfslok
Starfslok eru óumflýjanleg og þau geta borið að með ýmsum hætti.
Algengt er að starfslokum sé skipt í þrjá flokka
- starfslok þegar starfsfólk segir sjálft upp
- starfslok þegar vinnuveitandi / stjórnandi á frumkvæðið að starfslokunum
- starfslok vegna persónulegra aðstæðna eða breytinga, s.s. vegna eftirlauna, náms, flutninga eða annað
Þegar frumkvæðið að starfslokunum kemur frá vinnuveitanda geta þau reynt mjög á og að mörgu að huga, hvort sem það snýr að framkvæmdinni sjálfri eða því sem gerist í framhaldinu. Samskipti og upplýsingagjöf til þeirra sem láta af störfum, stuðningur við þá sem áfram starfa o.fl.
Á námskeiðinu verður einnig fjallað um ýmis erfið starfsmannamál og hvernig hægt er að vinna með þau, með það að markmiði að bæta úr – en einnig hvað er æskilegt að gera leiði þau til starfsloka.
Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:
- lært um erfið starfsmannamál og hvernig má vinna með þau til að forða að til uppsagna komi
- lært um hvað þarf helst að hafa í huga varðandi undirbúning uppsagnar, t.d. hvað varðar lög, kjarasamninga, stefnu vinnustaðar, umsýslu o.fl.
- lært um hvað er mikilvægt að hafa í huga og passa upp á í uppsagnarsamtalinu sjálfu og framkvæmd þess
- lært um hvað þarf að gera í framhaldinu af uppsögninni, bæði hvað varðar þann sem sagt var upp og þá sem áfram starfa – einnig áhrif á orðspor vinnustaðar ef ekki er vandað til verka í þessum efnum
Hefst
4. nóv. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
1 skiptiVerð
36.900 kr.Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar