

Taktu fyrstu skrefin í fjárfestingum
Hvað er Barbara?
Barbara er námskeið og samfélag sem kennir þér að fjárfesta sjálf/ur, í stað þess að greiða öðrum fyrir að gera það fyrir þig. Markmiðið er einfalt: að efla fjármálalæsi og gera þér kleift að taka sjálfstæðari ákvarðanir um eigin fjárhag, með leiðsögn alla leið og aðgengi að áhugaverðu og skemmtilegu samfélagi.
Af hverju að fjárfesta sjálf/ur?
Aukið aðgengi. Þú þarft hvorki ráðgjafa né háar lágmarksfjárhæðir. Þú getur byrjað strax og á þínum forsendum.
Lægri kostnaður. Þóknanir og umsýslugjöld éta upp ávöxtun yfir tíma. Eigin fjárfestingareikningur þýðir að stærri hluti ávöxtunarinnar verður eftir hjá þér.
Raunveruleg þekking. Þú skilur hvað þú átt og af hverju. Þetta er fjármálalæsi sem endist út lífið og þú getur miðlað til komandi kynslóða.
Námskeiðið: 3 × 90 mín lotur
Hver áfangi byggir á þeim fyrri:
1. Opna fjárfestingareikning.
Skref-fyrir-skref leiðsögn í gegnum uppsetningu reiknings.
2. Skilja markaðinn Hvað eru hlutabréf, sjóðir, kauphallir og verðbréf? Hvernig virkar eignarhald? Af hverju skiptir langtímahugsun máli?
3. Fyrsta fjárfestingin. Þú framkvæmir hana sjálf/ur, með stuðningi á staðnum. Þú lærir hvernig kaup fara fram og að meta valkosti áður en þú smellir á „kaupa“.
Samfélagið
Námskeiðinu lýkur. Barbara heldur áfram.
Þátttakendur verða hluti af samfélagi sem hittist reglulega og fjallar um markaði, fyrirtæki, verðmat, áhættu, tækni og stærri efnahags viðburði. Þar heldur fólk áfram að byggja upp þekkingu og sjálfstraust.
Barbara er vettvangur til að spyrja, fá innblástur og halda sig við efnið. Fólk þarf oftast annað fólk til að koma hlutunum í framkvæmd.
Hagnýtar upplýsingar
Dagsetning Sjá námskeið á www.bebarbara.com
Staðsetning Sjávarklasinn, Grandagarði 16.
Verð 54.900 kr. út júní 2026
*Takmarkað pláss í boði.
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af námskeiðinu.
Skráning og nánari upplýsingar: www.bebarbara.com
Kennarar
Helga Viðarsdóttir er stofnandi Barböru og hefur áralanga reynslu af fjármálamörkuðum, fjárfestingum og rekstri. Hún er með meistaragráðu í viðskiptum frá Viðskiptaháskóla Árósa í Danmörku og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Með Barböru vill hún hjálpa fólki að taka fyrstu skrefin í fjárfestingum, með skýrum leiðbeiningum og raunverulegum stuðningi.
Máni Scheving er nýútskrifaður stúdent með mikinn áhuga á tækni og fjármálum. Hann hefur verið að fjárfesta í nokkur ár og leggur áherslu á að gera fjárfestingar einfaldar og skiljanlegar fyrir byrjendur.
Námskeið framundan:
S5: 9. - 11. - og 18. júní
S6: 16. - 19. og 24.júní
S7: 23.-25. og 30.júní