

Stærðfræðifærni - fullorðnir
Vandað fjarnámskeið fyrir fullorðna sem dreymir um að fara aftur í nám, en vilja fyrst rifja upp og styrkja færni sína í stærðfræði.
Eða hreinlega geta aðstoðað unglinginn sinn með heimanámið í stærðfræði.
Stærðfræðin gerð einföld! Stutt og hnitmiðuð kennslu- og hugtakamyndbönd þar sem farið er skref fyrir skref - á einföldu máli í gegnum lykilþætti stærðfræðinnar! Hér eru engar ágiskanir - byrjað er frá grunni og haldið áfram veginn - nánast eins og á færibandi í gegnum leyndardóma stærðfræðinnar. Þú getur lært stærðfræði!
ATH. stéttarfélög veita styrk (niðurgreiða) námskeið um allt að 90%!
Ef það eru forsendur þínar fyrir kaupum á þessu vandaða fjarnámskeiði - kannaðu endilega rétt þinn hjá þínu stéttarfélagi. Við kaupin færðu síðan reikning frá Stærðfræðihvíslaranum sem þú framvísar hja þínu stéttarfélagi gegn niðurgreiðslu!
- 100% fjarnámskeið
- Fullur stuðningur kennara
- Hugtaka- og kennslumyndbönd
- Æfingadæmi
- Lausnir
- Lausnarmyndbönd (ef eitthvað fer úrskeiðis í æfingadæmum getur þú strax kíkt á lausnarmyndbönd - þú strandar aldrei)
- Getur sent fyrirspurn á [email protected] og leyst verður úr málum!