
Iðan fræðslusetur

PitStop Pro - Öflug pdf vinnsla
Þetta námskeið er ítarleg kynning á PitStop Pro, öflugu verkfæri fyrir grafíska miðlara sem gerir þeim kleift að yfirfara (preflight), lagfæra og breyta PDF skjölum fyrir prentun.
Fyrir hverja:
Þetta námskeið hentar fagfólki sem vinnur með prentskjöl, grafískum miðlurum, umbrotsfólki, prenturum og hönnuðum.
Markmið:
Að þátttakendur geti yfirfarið og lagfært pdf skjöl með nákvæmum og skilvirkum hætti.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Þátttakendur læra að greina villur í skjölum, leiðrétta sjálfkrafa algeng mistök og tryggja að skrár séu hæfar til prentunar.
- PitStop Pro hugbúnaðinn ásamt tengingum við annan hugbúnað Enfocus og möguleika í framleiðsluferlinu.
- Hvernig hægt er að hanna verkferla til þess að bæta gæði og koma í veg fyrir dýr mistök.
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta þátttakendur yfirfarið og lagfært skjöl fyrir prentun.
- Búið til sína eigin verkferla.
Hefst
1. sept. 2025Tegund
StaðnámTímalengd
2 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar