Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Námskeið fyrir löggildingu mannvirkjahönnuða

Námskeið fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga 
um mannvirki nr. 160/2010, verður haldið í nóvember 2024 og verður námskeiðið í fjarkennslu.

Opnað verður fyrir fyrirlestra þriðjudaginn 5. nóvember kl. 9.00 og verða þeir opnir til 22. nóvember.

Námskeiðinu lýkur með prófi föstudaginn 22. nóvember kl. 9.00 – 12.00

Námskeiðsgjald er 95.000.- kr. og 60.000.- kr. fyrir þá sem sækja námskeiðið til endurmenntunar án prófs.

Sótt er um þátttöku á námskeiðinu á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, hms.is með rafrænum skilríkjum á mínum síðum/öryggi mannvirkja 
“Umsókn á löggildingarnámskeið hönnuða”.

Með umsókn skulu fylgja:


• Afrit af prófskírteini umsækjanda
• Staðfesting ráðuneytis um réttindi til starfsheitis
• Vottorð/um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um mannvirki

Umsóknir skulu berast eigi síðar en mánudaginn 
28. október 2024

Hefst
5. nóv. 2024
Tegund
Fjarnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar