

Menntastoðir
Hefur þú áhuga á að hefja nám að nýju?
Menntastoðir er sérsniðið nám fyrir þig sem vilt ljúka fyrsta ári í námi á framhaldsskólastigi. Eftir útskrift úr Menntastoðum er hægt að sækja um í aðfaranám háskóla (Háskólabrú hjá Keili, Háskólagrunn í HR eða Háskólagáttina hjá Bifröst) eða fara í starfs-, iðn- eða tækninám.
Í náminu er lögð áhersla á góðan stuðning við nemendur og að stuðla að jákvæðu viðhorfi til náms. Námið hentar vel sem undirbúningur fyrir frekara nám.
Hægt er að velja um staðnám eða fjarnám
Menntastoðir er eftirsótt námsbraut sem hefur veitt mörgum ný tækifæri. Í náminu færð þú góða undirstöðu í grunnfögum, byggir upp hæfni til að læra á árangursríkan hátt og eflir sjálfstraust þitt fyrir frekara nám. Í staðnáminu er 80% mætingarskylda.
Eftir útskrift úr Menntastoðum er hægt að sækja um í aðfaranám háskóla (Háskólabrú hjá Keili, Háskólagrunn í HR eða Háskólagáttina hjá Bifröst) eða fara í starfs-, iðn- eða tækninám.
Í fjarnámi lýkur þú námi á tveimur önnum. Námið er fimm lotur og eru kenndar tvær námsgreinar í hverri lotu. Að auki eru tvær námsgreinar sem hvor um sig eru kenndar á einni önn. Námstækni er kennd á fyrri önn og Yndislestur á þeirri seinni. Því námi lýkur 31. maí
Fyrir hverja
Námið er fyrir þau sem hafa ekki lokið framhaldsskóla og eru orðin 20 ára og eldri. Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs
Námið fer fram á íslensku. Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur þurfa þátttakendur að hafa hæfni á stigi B2 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
Ef þú ert óviss með kunnáttu þína í íslensku getur þú komið í ókeypis stöðupróf í íslensku hjá Mími-símenntun áður en þú sækir um námið. Nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra.