

Markþjálfun í mannauðsmálum
Lærðu að beita aðferðum markþjálfunar í lykilverkefnum mannauðsmála til að styrkja samskipti, bæta árangur og auka vellíðan um leið og þú byggir upp eigin styrk og öryggi í starfi.
Markþjálfun í mannauðsmálum er fyrsta námskeið sinnar tegundar á Íslandi, hannað af reyndum mannauðssérfræðingum fyrir mannauðsfólk sem vill styrkja sig í starfi. Á námskeiðinu lærir þú grunnatriði markþjálfunar og hvernig þú getur beitt henni í daglegum verkefnum til að efla samskipti, auka stuðning, skerpa á ákvarðanatöku og byggja undir eigin leiðtogafærni.
Námskeiðið sameinar hagnýtar aðferðir sem þú getur auðveldlega tileinkað þér og beitt á áhrifaríkan hátt í starfi og persónulega markþjálfun, þar sem þú hefur tækifæri til að þess að fá speglun og stuðning til þess að auka sjálfsþekkingu og skilning.
Að styðja fólk í gegnum áskoranir, breytingar og ákvarðanir er krefjandi, en líka eitt mikilvægasta hlutverk mannauðsfólks.
Ef þú vilt byggja upp öfluga færni og innri styrk sem skilar sér í betri samskiptum, sterkari tengslum og markvissari vinnu, þá er þetta námskeið frábært skref í átt að þróun og vexti.
✨ Hverjum hentar námskeiðið?
Námskeiðið er ætlað bæði mannauðsfólki og stjórnendum sem koma að mannauðsmálum. Það skiptir ekki máli hvort þú ert nýgræðingur eða hokin/nn af reynslu, námskeiðið er fyrir þig.
Það hentar öllum sem vilja læra um markþjálfun og nýta hana sem verkfæri til að styrkja samskipti, áhrif og árangur í starfi.
✨ Á námskeiðinu færð þú:
-
Kynningu á grunnatriðum markþjálfunar
-
Hagnýt verkfæri til að eiga betri, dýpri og markvissari samtöl
-
Leiðir til að efla stjórnendur, styðja starfsfólk og leiða breytingar af öryggi og áræðni
-
Skýra aðferðafræði sem þú getur notað strax í þínum mannauðsverkefnum
-
Þrjá tíma í einstaklingsmarkþjálfun sem dýpka efnið og styðja við innleiðingu markþjálfunar í þín daglegu störf
✨ Á námskeiðinu byggir þú færni í að:
-
Halda utan um samtöl á skýran og faglegan hátt
-
Veita stuðning án þess að yfirtaka ábyrgð eða álag annarra
-
Stýra verkefnum af meiri yfirvegun, skýrleika og áræðni
-
Beita aðferðafræði markjálfunar í fjölbreyttum verkefnum
-
Byggja upp faglegt öryggi og trúverðugleika í mannauðshlutverkinu
✨ Uppbygging námskeiðs:
Námskeiðið samanstendur af þremur staðlotum þar sem við förum í gegnum grunnþætti markþjálfunar og hvernig þær aðferðir nýtast í mannauðsmálum.
Hver lota er 3 klukkustundir og á milli lota fær hver þátttakandi þrjá tíma í einstaklingsmarkþjálfun sem styðja við persónulega þróun og innleiðingu aðferðarinnar í dagleg störf.
-
3 staðlotur (3 klst hver) með fræðslu, umræðum og hagnýtum æfingum
-
3 markþjálfunartímar (50 mínútur hver) á milli lota
-
Verkefni sem tengja innihald lotanna við daglegt HR starf
-
Hagnýt verkfæri sem þú getur notað strax í samtölum og öðrum lykilverkefnum
📍 Staðsetning: Virkja, Bolholti 4, 105 Reykjavík
📅 Næstu tímasetningar
27. okt - kl.9-12
24. nóv - kl.9-12
12. jan - kl.9-12
Verð: 129.000 kr.