

Leikskólasm. & íslenska 3 | Icelandic 3 & kinderg.
[information in English below]
Hefur þú áhuga á að vinna með börnum en þarft að læra meiri íslensku? Þá er þetta námskeið fyrir þig!
Leikskólasmiðja og íslenska 3 er sérstakt námskeið fyrir þau sem langar að vinna með börnum og þurfa traustan grunn í íslensku til að geta sinnt starfinu á árangursríkan og faglegan hátt.
Þetta er tækifæri fyrir þig til að læra hagnýta íslensku sem nýtist í starfi á leikskóla.
Um námskeiðið
Námskeiðið samanstendur af fjölbreyttum námsþáttum sem miða að því að styrkja íslenskukunnáttu þína og veita þér nauðsynlega þekkingu og færni í mörgu því sem viðkemur leikskólastarfi á Íslandi.
Áhersluþættir námskeiðsins
- Læra íslensku með starfstengdri áherslu: Þú byggir upp orðaforða sem nýtist sérstaklega í starfi með börnum.
- Fá innsýn í leikskólastarf: Þú kynnist starfsháttum og menningu í leikskólastarfi á Íslandi sem eykur skilning þinn og gerir þig að verðmætari starfsmanni.
- Taka þátt í skapandi vinnustofum: Í náminu er lögð áhersla á skapandi notkun tónlistar, útikennslu og leiklistar í starfi með börnum.
- Fara í vettvangsnám í leikskóla: Þú færð fjögurra daga vettvangsnám í leikskóla þar sem þú tekur virkan þátt í daglegu starfi á leikskólanum. Þetta er gott tækifæri til að tengja námið við raunverulegar aðstæður.
Preschool workshop and Icelandic 3
Are you interested in working with children but need to learn more Icelandic? Then this course is for you!
Nursery Workshop and Icelandic 3 is a special course for those who wish to work with children and need a solid foundation in Icelandic to be able to carry out their work effectively and professionally.
This is an opportunity for you to learn practical Icelandic that will be useful in a job at a nursery school.
About the course
The course consists of a variety of modules aimed at strengthening your Icelandic language skills and providing you with the necessary knowledge and skills in many aspects of nursery education in Iceland.
Course Focus
- Learn Icelandic with a vocational focus: You build up a vocabulary that is particularly useful in working with children.
- A glimpse into nursery life: You will become familiar with the working practices and culture of nursery education in Iceland, which will increase your understanding and make you a more valuable employee.
- Take part in creative workshops: The programme places an emphasis on the creative use of music, outdoor education and drama in working with children.
- Field study at a nursery school: You will undertake a four-day placement in a nursery school, where you will take an active part in the daily work. This is a good opportunity to connect your studies with real-life situations.