Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Íslenska 3 | Icelandic 3

Íslenska 3 (A2.1) [information in English below]

Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku. Þú bætir við þig fjölbreyttum orðaforða og eflir sjálfstraust þitt til að nota tungumálið. Við leggjum áherslu á skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

Námskeiðið Íslenska 3 er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, það er skilning, lestur, ritun og talþjálfun með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Íslenska 3 er framhaldsnámskeið á stigi A2.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 3 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.

Áherslur

Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsmálum og þörfum þínum. Þú lærir um og notar ýmsar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt í að tala íslensku. Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir setningar bæði í samtölum og frásögn. Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun. Málfræðin er áfram kynnt og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og það sem þú hefur þegar lært. .

-----------------

Icelandic 3 (A2.1)

In the course, you continue to take confident steps in learning Icelandic. You will expand your vocabulary and boost your confidence in using the language. We focus on comprehension and speaking practice that is useful in everyday life.

The course is tailored for you who are continuing to learn Icelandic. It focuses on building a varied vocabulary for everyday language. You will practise all aspects of the language: comprehension, reading, writing and speaking, using a variety of practical methods.

An intermediate course at level A2.1 according to The European Language Framework . A variety of teaching materials are used on the course, and active student participation ensures that learning Icelandic is both effective and enjoyable. The course materials Icelandic for everyone 3 is used in addition to games, cards, supplementary material and various types of electronic aids.

Emphasis

You continue to learn Icelandic, which is useful in daily life and relates to social issues and your needs. You learn about and use various techniques that increase your confidence in speaking Icelandic. We place an emphasis on speech practice, and you will practise sentences in both conversation and narration.

All language skills are practised in the Icelandic course: listening, speaking, reading and writing.

The grammar is continued to be presented and practised in a simple and practical way, in relation to the course material and what you have already learnt.

 

Hefst
8. apríl 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar