

Hver var María Magdalena?
Hver var María Magdalena? Var hún bersyndug kona, nánasti lærisveinn Jesú – eða jafnvel lykilpersóna í andlegu samfélagi hans?
Þetta námskeið býður upp á nýtt og gagnrýnið sjónarhorn á stöðu Maríu Magdalenu í sögu kristninnar. Hefðbundnar túlkanir á feðraveldinu og hlutverki kvenna í frumkristni eru skoðaðar í ljósi frásagna og hefða sem setja Maríu Magdalenu í lykilhlutverk í andlegu samfélagi Jesú Krists.
Farið verður yfir ólíkar myndir Maríu Magdalenu í gegnum aldirnar; sem heilara og kennara, sem hinnar svokölluðu bersyndugu konu, konunnar sem smurði Jesú, vitni að upprisunni og „postula postulanna“. Einnig verður fjallað um sagnir um komu hennar til Frakklands og dvöl þar sem einsetukona, sem og meint tengsl hennar við sögu Katara og Musterisriddara. Að lokum verður rætt hvaða merkingu og erindi María Magdalena kann að hafa í samtímanum, meðal annars í ljósi hugmynda um Vatnsberaöldina og andlega vakningu nútímans.