

Hugleiðsla fyrir forvitna
10 daga hugleiðslunámskeið á íslensku. Kennt á netinu þegar þér hentar, með kennsluvídjóum og leiddri hugleiðslu á hverjum degi.
Kennari er Hildur Kristín, Hildur Kristín er er jógakennari, tónlistarkona
og fyrirlesari sem hefur brennandi áhuga og trú á hugleiðslu og umbreytandi mætti hennar.
Við skoðum fjölmargar mismunandi hugleiðsluaðferðir, til dæmis hugleiðslu út frá öndun, möntru, líkamsskönnun, mildi og myndræna hugleiðslu.
Allt svo að þú getir fundið þær aðferðir sem hentar þér best!
Hentar öllum getustigum, hvort sem þú ert byrjandi eða hafir einhverja reynslu.
Námskeiðið inniheldur:
- Undirbúningsdag
- 10 kennslustundir
- 10 hugleiðslur
- Upprifjun eftir hvern dag
Umfjöllunarefni:
Dagur 1 – Hvað er eiginlega hugleiðsla?
Dagur 2 – Öndunin sem akkeri
Dagur 3 – Líkaminn þinn
Dagur 4 – Fljúgandi hugur
Dagur 5 – Möntru hugleiðsla
Dagur 6 – Að hlusta á þig
Dagur 7 – Hlýja og mildi
Dagur 8 – Örhugleiðslur
Dagur 9 – Myndræn hugleiðsla
Dagur 10 – Þögnin og næstu skref
Hvað muntu læra?
- Að vera meira til staðar — í lífinu, ekki bara í hugleiðslu
- Að finna aðferðir sem hentar þér best
- Að nálgast ró á nýjan hátt
- Að vinna með huganum í staðinn fyrir að vinna á móti honum
- Að læra að hlusta betur á þig
- Hvernig þú getur nýtt þér ýmislegt úr hugleiðslunni gegnum daginn
- Að senda þér hlýju og mildi
- Að byggja upp daglega iðkun á þínum eigin forsendum
- Að tengjast líkama þínum betur
Fyrir hverja?
- Fólk sem vill finna fyrir meiri ró
- Fólk sem vill bæta einbeitinguna
- Fólk sem vill sofa betur
- Fólk sem vill draga úr stressi og kvíða
- Fólk sem finnur fyrir þunglyndi
- Fólk sem vill þjálfa tilfinningastjórn
- Fólk sem vill auðga sköpunarkraft og fá fleiri hugmyndir
- Fólk sem vill yfir höfuð bara prófa eitthvað nýtt sem gæti bætt líf sitt