

Grunnur að hollu mataræði
Grunnur að hollu mataræði er námskeið fyrir alla sem vilja læra að setja saman hollar og næringarríkar máltíðir.
Farið er yfir vítamínin og steinefnin sem eru okkur nauðsynleg. Hvernig skorts einkennin eru og hvernig við getum fengið þau út úr mataræðinu. Einnig er farið yfir mismunandi prótein- og kolvetnisgjafa sem ýtir undir fjölbreytni í fæðunni. Fita er einnig tekin fyrir og farið yfir hvers konar fita hentar okkur best til að lifa löngu og heilbrigðu lífi.
Einnig er farið yfir hvernig við lesum á innihaldslýsingar og hversu villandi þær geta verið.
Við lifum öll svo mismunandi lífi, með svo mismunandi markmið. Í námskeiðinu er lögð áhersla á það með dæmum hvernig við getum sett upp plan fyrir okkur sjálf, allt eftir markmiðum og lífstíl.
Þetta námskeið er tilvalið fyrir þá sem vilja fræðast meira um holla næringu og einnig fyrir þá sem vilja fá upprifjun og eru tilbúnir að taka mataræðið á næsta stig.