Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Gervigreind í daglegu lífi

Gervigreind í daglegu lífi – Byrjendanámskeið fyrir öll

Fimmtudaginn 3.apríl kl. 17:10-20:20

Lengd: 3 klst.
Kennslumáti: Staðnám (og mögulega fjarnám)
Kennslutungumál: Íslenska

Þátttakendur fá sendan tölvupóst með öllum helstu upplýsingum viku fyrir námskeiðið

Lýsing:
Þetta námskeið er ætlað þeim sem eru forvitnir um gervigreind (AI) og vilja kynnast grunnatriðum hennar á einfaldan og skemmtilegan hátt. 

Markmið námskeiðsins:

  • Að veita almenna innsýn í hvað gervigreind er, hvernig hún virkar og hvar við sjáum hana í okkar daglega lífi.
  • Að sýna hvernig gervigreind getur hjálpað okkur í einföldum verkefnum, eins og ferðaplönum, heimilisskipulagi, að finna upplýsingar á netinu og fleira.
  • Að veita hagnýtar leiðbeiningar um hvernig þátttakendur geta nýtt einföld forrit og öpp sem nýta sér gervigreind til að auðvelda og skipuleggja dagleg verkefni.

 

Fyrir hverja er námskeiðið?
Þetta námskeið er fyrir öll sem vilja öðlast betri skilning á gervigreind án þess að þurfa flókna tæknilega þekkingu. Þátttakendur þurfa ekki að vera með mikla tölvukunnáttu en ættu að hafa áhuga á að kynnast nýrri tækni og hvernig hún getur auðveldað daglegt líf.

Hefst
3. apríl 2025
Tegund
Staðnám og fjarnám
Verð
13.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Mímir - símenntun