Haraldur Karlsson
Haraldur Karlsson
Haraldur Karlsson

Gervigreind á eigin forsendum — prufutími

Viltu sjá hvernig gervigreind nýtist í raun, áður en þú skráir þig á heilt námskeið? Á tveimur klukkustundum förum við í gegnum þrjár spurningar sem flestir koma með.

Er óhætt að láta gervigreind lesa skjölin mín?
Það fer eftir því hvaða skjöl, og þú ræður því. Við berum saman þrennt: venjulegan tölvupóst, venjulegt spjall við gervigreind og möppu á eigin tölvu þar sem gervigreindin sér aðeins það sem þú setur þar. Þú lærir að flokka gögnin þín í þrep, frá opinberu efni til trúnaðarmála sem fara aldrei inn, og að slökkva á því að efnið þitt sé notað til þjálfunar. Hvert hlutverk fær sína möppu: starfið, stjórnin, húsfélagið. Það sem á heima í einni sést ekki í annarri.

Get ég treyst svörunum?
Ekki blint. Þess vegna setjum við reglur. Dæmi: Litlu félagi berst fyrirspurn í tölvupósti og við biðjum gervigreindina tvisvar um svar. Í fyrra skiptið veit hún ekkert um félagið og lofar öllu fögru. Í seinna skiptið hefur hún lesið fundargerð stjórnar, lög félagsins og orðalista þess. Þá lofar hún engu sem stjórnin hefur ekki ákveðið, vísar í rétta grein laganna og segir til þegar lögin þegja.

Þarf ég að vera tæknimanneskja?
Nei. Reglurnar um hvernig gervigreindin les gögnin og vinnur úr þeim eru stutt textaskjöl sem heita .md-skjöl (Markdown): venjulegur texti sem hver sem er getur lesið og breytt. Við notum tvö forrit sem kosta ekkert til að byrja með: Claude, sem er gervigreindin, og Obsidian, sem heldur utan um skjölin.

Þú skrifar þitt fyrsta regluskjal, hálfa síðu um þig og starfið þitt, prófar eitt verkefni úr eigin vinnu með því og án, og tekur það með þér heim.

Fyrir hverja?
Þau sem reka lítið félag, sitja í stjórn eða vinna sjálfstætt, ekki síst í skapandi greinum. Þú þarft ekki að kunna að forrita.

Fyrirkomulag
Eitt skipti, tvær klukkustundir, þriðjudaginn 15. desember kl. 17:00–19:00. Hámark sex þátttakendur. Í Reykjavík. Staðsetning er send skráðum þátttakendum. Þú þarft fartölvu og færð stuttar leiðbeiningar fyrir tímann um að stofna ókeypis aðgang að Claude og sækja Obsidian.

Verð: 9.900 kr. Upphæðin gengur upp í gjaldið ef þú heldur áfram.

Framhaldið: Grunnur (3 skipti) og Framhald (3 skipti) frá 19. janúar, eða einkatími við þína eigin tölvu. Fleiri prufutímum er bætt við ef þessi fyllist.

Hefst
15. des. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Verð
9.900 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar