

Fyrsta alvöru verkefnið þitt með Claude
Verklegt grunnnámskeið í Claude með Óskari Þórðarsyni. Við förum skref fyrir skref í litlum hópi. Þú þarft ekki að kunna að forrita.
Hvenær: Miðvikudaginn 18. nóvember 2026, kl. 09:00–13:00, með hléum.
Húsið opnar kl. 08:45.
Hvar: Borgarbókasafnið Úlfarsárdal, Smiðjan (fjölnota rými).
Heimilisfang: Úlfarsbraut 128, 113 Reykjavík.
Námskeiðsgjald: 34.900 kr. á mann.
Hámarksfjöldi: 12 þátttakendur.
Þetta lærir þú
• Að semja skýr fyrirmæli frá grunni með Claude og vista þau í möppu.
• Að láta Claude lesa skjöl, flokka upplýsingar og búa til Excel-skjal.
Þú þarft
Fartölvu (Windows eða Mac), Claude Desktop uppsett og virka Pro- eða Max-áskrift. Pro nægir. Áskriftin er ekki innifalin og greiðist sérstaklega til Anthropic.
Innifalið
Fjögurra klukkustunda námskeið með hléum, æfingagögn, leiðbeiningar og aðstoð í litlum hópi. Innan námskeiðsins færðu 25 mínútur til að vinna eigið verkefni með aðstoð kennarans.