Þín leið
Þín leið
Þín leið

Ferilskrá og kynningarbréf

Ferilskrá og kynningarbréf tilbúin á einu kvöldi

Þú tekur saman yfirlit yfir allt sem þú kannt, byggir skýra ferilskrá á því og skrifar kynningarbréf sem er stílað á starfið sem þig langar í. Allt á einu kvöldi, án þess að stara á autt blað.

Þarftu að uppfæra ferilskrána þína? Kannski er langt síðan síðast. Kannski fannstu starf sem þig langar í og umsóknarfresturinn rennur út á föstudaginn.

Þetta er örnámskeið á netinu sem er hægt að taka á þeim tíma sem hentar. 

Hvað er innifalið

Þrjú myndbönd, um 7 mínútur hvert, og allt sem þú þarft til að vinna með þeim:

  • Yfirlitið mitt, myndband og vinnublað. Þú tekur saman menntun, reynslu og hæfni, með dæmum. Svo þú gleymir ekki helmingnum af því sem þú kannt.

  • Ferilskráin byggð upp, myndband og sniðmát. Skýr ferilskrá þar sem hæfnin þín sést strax.

  • Kynningarbréfið, myndband og sniðmát með dæmum um sterkar opnanir. Svo þú skrifir ekki það sama og öll hin og getir lagað bréfið að næstu umsókn á 15 mínútum.

  • Gátlistinn „Áður en þú ýtir á senda“. Svo engin vandræðaleg villa fari með umsókninni.

Skráning og nánari upplýsingar: https://namskeid.thinleid.is/ferilskra-namskeid

Tegund
Fjarnám
Verð
3.990 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar