Dokkan
Dokkan
Dokkan

Að leiða með yfirvegun, skýrleika og áhrifum

Tilfinningagreind sem styrkir þig í stjórnendahlutverkinu.

Bestu stjórnendurnir hafa ekki alltaf svörin. En þeir kunna að halda ró, lesa aðstæður og velja hvernig þeir bregðast við.

Tilfinningagreind er ein af lykilhæfnunum í nútímaforystu. Hún hjálpar stjórnendum að skilja betur eigin áhrif, lesa það sem er að gerast í samskiptum og skapa það öryggi og þann skýrleika sem fólk þarf til að geta staðið sig vel.

Á þessu námskeiði vinnum við með tilfinningagreind sem hagnýtt leiðtogaverkfæri – ekki sem fræðilegt hugtak.

Við skoðum hvernig stjórnendur geta:

  • verið meðvitaðri um eigin áhrif og viðbrögð,
  • haldið ró og yfirvegun þegar mikið gengur á,
  • lesið betur í þarfir, hegðun og líðan starfsfólks,
  • átt skýr og uppbyggileg samtöl,
  • brugðist vel við sterkum tilfinningum – bæði eigin og annarra,
  • og skapað traust, tengingu og ábyrgð í teyminu.

Við kynnumst jafnframt þremur sterkum tilfinningum sem gjarnan láta á sér kræla þegar álag eða breytingar aukast – kvíða, sorg og reiði – og skoðum hvernig stjórnandinn getur mætt þeim af skilningi án þess að þær taki yfir stjórnina.

Markmið námskeiðsins

Að námskeiði loknu hafa þátttakendur:

  • aukna sjálfsvitund, skýrari sýn á eigin áhrif og hagnýt verkfæri til að leiða fólk af meiri ró, festu og mannlegum skilningi.
  • Markmiðið er ekki að losna við erfiðar tilfinningar.
    Markmiðið er að geta leitt vel þrátt fyrir þær.

Fyrir hverja?

  • Stjórnendur
  • Millistjórnendur
  • Teymisstjóra
  • Aðra sem vilja verða öruggari og áhrifameiri í leiðtogahlutverkinu.
Hefst
13. okt. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Verð
36.900 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar