Lóa markþjálfun
Lóa markþjálfun
Lóa markþjálfun

Á réttri hillu - námskeið um starfsánægju

Ertu að skoða ný störf en ekki alveg viss hvað þú vilt?

Stundum vitum við að við viljum breytingu áður en við vitum nákvæmlega hver hún á að vera. Þá getur verið gagnlegt að staldra við og skoða hvað skiptir þig raunverulega máli í starfi, hvað gefur þér orku og hvað tekur hana frá þér og hvað þú þarft til að njóta þín betur í vinnunni.

Á réttri hillu er 4 vikna námskeið þar sem þú færð tíma, verkfæri og stuðning til að skoða starfsánægju þína, styrkleika, gildi og það sem þú vilt hafa meira (eða minna) af í starfinu.

Markmiðið er að þú þekkir betur hvað þú þarft til að njóta þín í starfi og hvað þú vilt hafa öðruvísi. Fyrir suma leiðir sú skoðun að breytingum í núverandi starfi. Aðrir sjá skýrar hverju þeir vilja leita eftir í nýju starfi.

Námskeiðið hefst 6. október.

Hefst
6. okt. 2026
Tegund
Fjarnám
Tímalengd
4 skipti
Verð
39.900 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar