Garðabær
Garðabær
Garðabær

Starfsmaður óskast á Miðskóga, heimili fatlaðs fólks

Auglýst er eftir sumarstarfsmanni á heimili fatlaðs fólks í Garðabæ, (á Álftanesi). Um er að ræða vaktavinnu í 80-100% starfshlutfalli frá 11. maí - 31. ágúst (sveigjanlegt), möguleiki á áframhaldandi starfi næsta vetur. Starfsmaður vinnur eina helgi í mánuði. Leitað er eftir jákvæðum og traustum einstaklingi (20 ára og eldri) sem hefur áhuga á málefnum fatlaðs fólks.

Á vinnustaðnum starfa nú 13 manns í mismunandi starfshlutfalli. Í starfshópnum er lögð áhersla á jákvætt og lausnamiðað samstarf.

Um er að ræða lærdómsríkt og fjölbreytt starf þar sem unnið er á dag-, kvöld- og næturvöktum og að jafnaði aðra hverja helgi.

Starfað er samkvæmt lögum og reglugerðum sem tengjast málefnum fatlaðs fólks. Lögð er sérstök áhersla á hugmyndafræði um sjálfstætt líf og valdeflingu. Jafnframt eru höfð að leiðarljósi gildi Garðabæjar: Jákvæðni, fagmennska og áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu við athafnir daglegs lífs, innan og utan heimilis
  • Þátttaka í áætlanagerð
  • Þátttaka á starfsmannafundum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur svo sem félagsliða- eða stuðningsfulltrúanám
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð samskiptahæfni
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum (skilyrði)
Auglýsing stofnuð22. apríl 2024
Umsóknarfrestur5. maí 2024
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfvirkar prófanir
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar