Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Umönnun sumar -og framtíðarstörf - Reykjanesbær

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starftækifæri í sumar? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni?
Þá erum við mögulega að leita að þér!
Hrafnistuheimilin í Reykjanesbæ, Hlévangur og Nesvellir, leita að öflugu sumarstarfsfólki í fjölbreytt umönnunarstörf. Um er að ræða 80-100% störf í vaktavinnu á Hlévangi og Nesvöllum en við leitum einnig af öflugu fólki í hlutastarf um helgar. Einnig vantar starfsfólk í fullt framtíðarstarf á Nesvöllum.
Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið dagvaktir í bland við aðrar vaktir.
Starfsfólk í umönnun sinnir fjölbreyttum verkefnum og er enginn vinnudagur eins. Það starfar náið með íbúum og aðstoðar þá meðal annars við fataskipti, böðun, salernisferðir, matmálstíma, lyfjainntöku og félagslegan stuðning.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða íbúa við athafnir daglegs lífs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð færni í samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi og stundvísi
  • Metnaður í starfi og öguð vinnubrögð
Auglýsing stofnuð2. maí 2024
Umsóknarfrestur16. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Faxabraut 13, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar