Yfirlæknir brjóstamyndgreiningar á Landspítala
Spennandi tækifæri á Brjóstamiðstöð Landspítala.
Við leitum að metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga sem býr yfir færni og reynslu til að leiða hóp fagfólks með brennandi áhuga á uppbyggingu og þróun brjóstamyndgreiningar innan Brjóstamiðstöðvar. Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að vera leiðandi fyrir brjóstamyndgreiningu á landsvísu.
Yfirlæknir er leiðtogi og ber faglega ábyrgð og ábyrgð á daglegum rekstri sem stjórnandi einingarinnar í samvinnu við aðra stjórnendur einingarinnar. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslu og uppbyggingu vísindastarfs innan sérgreinarinnar.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu af brjóstamyndgreiningu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu starfseminnar í nánu samstarfi við stjórnendur Brjóstamiðstöðvar og annað starfsfólk.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er yfirlæknir Brjóstamiðstöðvar.
Brjóstamiðstöð er miðpunktur í þjónustu við einstaklinga með sjúkdóma og einkenni frá brjóstum ásamt því að hafa umsjón með framkvæmd brjóstaskimunar á Íslandi. Mikil áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf og þjónustumiðaða nálgun þar sem starfsemin er í stöðugri þróun. Deildin veitir fjölþætta þjónustu og er í fararbroddi fyrir brjóstamyndgreiningu á landsvísu. Starfsaðstaða er góð og deildin er mjög vel tækjum búin.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun brjóstamyndgreiningardeildar
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Fagleg ábyrgð á menntun og vísindastarfi sem snýr að sérgreininni
- Ábyrgð á starfsemi brjóstamyndgreiningar gagnvart Geislavörnum ríkisins
- Fagleg ábyrgð með framkvæmd og úrlestri brjóstaskimunar á landsvísu
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni
- Almenn sérfræðilæknisstörf á brjóstamyndgreiningadeild Brjóstamiðstöðvar
- Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila
- Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta
- Þátttaka í gæða-og umbótastarfi
- Íslenskt sérfæðileyfi í myndgreiningu
- Breið almenn færni í brjóstamyndgreiningu, klínískri brjóstamyndgreiningu og brjóstaskimun og þekking og reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi
- Umfangsmikil þekking á brjóstaskimun og hæfni til að leiða og skipuleggja skimunarstarf
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Færni og reynsla í stjórnunarhlutverki
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum með sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Ef íslenska er ekki móðurmál er gerð krafa um góða þekkingu og færni í ensku