Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á skilunardeild
Við leitum eftir kraftmiklum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar skilunardeildar á Hringbraut. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og hæfni til að takast á við breytingar. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi nýrnalækninga og fjölmarga aðra fagmenn spítalans.
Skilunardeildin er spennandi og faglega krefjandi vinnustaður þar sem unnið er náið með sjúklingum í tæknilegu umhverfi. Á deildinni fer fram blóðskilun en einnig kennsla, þjálfun og eftirlit sjúklinga í kviðskilun, en þessar meðferðir eru lífsnauðsynlegar fyrir einstaklinga með nýrnabilun á lokastigi. Einnig eru blóðvökvaskipti framkvæmd á deildinni. Um fullt starf er að ræða sem er laust frá 1. júlí 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Á skilunardeild starfa um 30 manns í þverfaglegu teymi og góðu starfsumhverfi við góðan starfsanda. Opnunartími deildarinnar er frá 8:00 til 20:00 virka daga og 8:00 til 15:00 um helgar. Unnið er á tvískiptum vöktum og bakvaktir eru utan opnunartíma. Skjólstæðingar deildarinnar eru um 100 talsins og á öllum aldri. Starf á skilunardeild felur í sér mjög fjölbreytta hjúkrun og fær nýtt starfsfólk ítarlega þjálfun.
Vinnuvika starfsfólks í vaktavinnu er nú 36 stundir. Við bjóðum upp á góða vinnuaðstöðu og gott starfsumhverfi með fjölskylduvænum vinnutíma, fyrsta flokks mötuneyti og útsýni yfir gosstöðvarnar á Reykjanesi.