Sérfræðingur í upplýsingatækni
Innnes ehf leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á upplýsingatækni og stafrænni þróun til að starfa í öflugu teymi upplýsingatæknisviðs. Starfið felur í sér þátttöku í fjölbreyttum verkefnum í rekstri upplýsingakerfa sem og stærri þróunar- og umbótaverkefnum, ásamt tæknilegri ráðgjöf, úrvinnslu verkbeiðna og notendaþjónustu. Um er að ræða spennandi og skemmtilegt starf í hópi reynslumikilla sérfræðinga þar sem möguleikar eru á að þróast og vaxa í starfi.
Innnes er traust, leiðandi og framsækið fyrirtæki á matvörumarkaði þar sem áhersla er lögð á breitt framboð af gæðavörum og hátt þjónustustig til viðskiptavina. Í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Korngörðum 3 eru skrifstofur, hátæknivöruhús og dreifingamiðstöð. Þar starfar öflug liðsheild sem er lykillinn að farsælum árangri fyrirtækisins. Innnes leitast við að ráða og hafa í sínum röðum starfsfólk sem býr yfir metnaði til að ná árangri.
- Menntun á sviði upplýsingatækni eða reynsla sem nýtist vel í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Lausnamiðuð hugsun og góð greiningarfærni
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð og góð skipulagsfærni
- Frumkvæði í verkefnum og geta til að vinna vel í teymi
- Jákvætt viðmót og þjónustulund
- Umbótamiðuð hugsun
Reynsla af einhverju eftirtalinna er kostur en ekki skilyrði:
- Þekking/reynsla af því að vinna í Microsoft umhverfi
- Reynsla af viðskiptakerfum, s.s. Navision eða Dynamics AX
- Reynsla af gagnagreiningum eða notkun lausna í viðskiptagreind (BI)
- Aðkoma að verkefnum í sjálfvirknivæðingu ferla
- Reynsla af kerfisumsjón eða notendastjórnun
- Þekking/reynsla af forritun
- Aðgengi að frábæru mötuneyti
- Árlegur íþróttastyrkur
- Möguleiki á samgöngustyrk
- Net- og farsímaáskrift