Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.
Sérfræðingur á umsjónardeild á Suðursvæði
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á umsjónardeild Suðursvæðis.
Suðursvæði Vegagerðarinnar nær frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi að botni Hvalfjarðar og upp á miðhálendi. Svæðismiðstöð Suðursvæðis er á Selfossi en sérfræðingur getur einnig haft starfsstöð í Garðabæ.
Umsjónardeild hefur umsjón og eftirlit með framkvæmdum á Suðursvæði. Í samráði við mannvirkjasvið sinnir umsjónardeild viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum vega, ásamt efnisvinnslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við áætlanir og undirbúning framkvæmda í nýframkvæmdum og viðhaldi
- Hafa umsjón/eftirlit með framkvæmdum bæði tæknilega og fjárhagslega
- Vinna við undirbúning verka, halda utan um magnuppgjör, áætlanagerð, kostnaðareftirlit, gæðaeftirlit og útboðslýsingar
- Sjá um verkfundi og skráningar í gagnabanka að loknum framkvæmdum
- Önnur verkefni, sem falla undir starfsvið umsjónardeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af nýframkvæmdum og viðhaldi vegamannvirkja æskileg
- Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
- Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
- Góð öryggisvitund
Auglýsing stofnuð22. apríl 2024
Umsóknarfrestur6. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaMjög góð
EnskaGrunnfærni
Staðsetning
Breiðumýri 2, 800 Selfoss
Suðurhrauni 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)
Bókari/Uppgjörsaðili
LOGN Bókhald
Innheimtufulltrúi í Fjárreiðudeild
Samskip
Verkefnastjóri
Þingvangur ehf.
Sérfræðingur - þjónustudeild á Suðursvæði.
Vegagerðin
Quality Assurance Engineer
Tern Systems
Framleiðslustjóri (e. production manager)
Climeworks
Viðhaldsstjóri (e. maintenance manager)
Climeworks
Vinnuverndarfulltrúi (e.occupational health and safety rep.)
Climeworks
Yfirverkstjóri Borgarnes
Vegagerðin
Sérfræðingur á fjármálasviði
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Group controller
Rotovia
Verkefnastjóri í upplýsingatækniráðgjöf
Deloitte