Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja er framsækið þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á nýjum og notuðum bifreiðum frá Mercedes-Benz, Kia og Honda ásamt þjónustu og viðhaldi fyrir viðskiptavini Öskju, bæði til einstaklinga og fyrirtækja.
Við vitum að eitt mesta virði okkar felst í góðum mannauð.
Hjá Öskju starfar samheldin og fjölbreyttur hópur sem býr yfir brennandi áhuga í sínu fagi, framúrskarandi þjónustulund og metnaði til ná árangri. Askja býður upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir starfsfólk, eitt fullkomnasta bifreiðaverkstæði landsins, glæsilega sýningarsali og varahlutaþjónustu.
Lögð er sérstök áhersla á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina með því að veita starfsfólki stuðning og skapa því umhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku og heiðarleika.
Askja er staðsett á Krókhálsi 7-13 í þremur húsnæðum. Askja notaðir bílar eru á Krókhálsi 7 þar sem við bjóðum upp á úrval notaðra bíla frá öllum bílaframleiðendum. Sýningarsalur Mercedes-Benz er á Krókhálsi 11 ásamt höfuðstöðvum Öskju og skrifstofu og svo sýningarsalur Kia og Honda á Krókhálsi 13.
Bifvélavirki fólksbílaverkstæði Mercedes-Benz og smart
Bílaumboðið Askja óskar eftir að ráða bifvélavirkja á fólksbílaverkstæði Mercedes-Benz og smart. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls í Reykjavík.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.
Af hverju Askja?
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
- Allir hafa rödd sem hlustað er á
- Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur
- Líkamsræktaraðstaða
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
- Þjónustuskoðanir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun
- Reynsla af vinnu á verkstæði kostur
- Samstarfs- og samskiptahæfni.
- Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
- Öguð, snögg og nákvæm vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
- Ökuréttindi
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur5. maí 2024
Staðsetning
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiÖkuréttindiSamvinnaSjálfstæð vinnubrögðSveinsprófÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Viltu stuðla að vinnuvernd og öryggi? Ísafjörður
Vinnueftirlitið
Viltu stuðla að vinnuvernd og öryggi? Reykjanesbær/Reykjavík
Vinnueftirlitið
Viðhald og eftirlit - vélaverkstæði Ísafirði
Vegagerðin
Starfsmaður í smurþjónustu
TS Bílar
Óskað er eftir bifvélavirkja eða vönum aðila í fullt starf
Bílaverkstæði Þóris ehf
Bifvélavirki
IB ehf
Skoðunarmaður ökutækja á Höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf
Bifvélavirki í Reykjanesbæ
Avis og Budget
Bifvélavirki / Car mechanic
Bílvogur
Mechanic / Bifvélavirki
Campeasy
Starfsmaður á vélaverkstæði
Eimskip
Sölu- og þjónustufulltrúi í þjónustumóttöku
Ford, Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg