Vinnueftirlitið
Hjá Vinnueftirlitinu starfar metnaðarfullur og samheldinn hópur sem leggur áherslu á að ná fram því markmiði að öll komi heil heim úr vinnu.
Við leitumst við að vera fyrirmyndarvinnustaður á sviði vinnuverndar og viljum að fagþekking starfsfólks sé eftirsótt til ráðgjafar í íslensku atvinnulífi. Við störfum saman í fagteymum og höfum skilvirka og vandaða stjórnsýslu að leiðarljósi.
Vinnueftirlitið býður fjölskylduvænt starfsumhverfi, samkeppnishæf starfskjör og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.
Viltu stuðla að vinnuvernd og öryggi? Ísafjörður
Vilt þú vera hluti af öflugri liðsheild sem stuðlar að vinnuvernd og öryggi?
Vinnueftirlitið leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi með mikla þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði.
Viðkomandi mun koma til með að sinna vinnuvéla og lyftuskoðunum ásamt því að veita leiðbeiningar á sviði vinnuverndar og vinna að sérverkefnum. Gleði, lausnarmiðað hugarfar og léttleiki eru eiginleikar sem við leitum að.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfstöð á Ísafirði. Skoðunarsvæðið nær yfir alla Vestfirði, frá Gilsfirði að vestan til Hrútafjarðar að austan. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum getur verið um lengri ferðalög að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd eftirlits með skoðunarskyldum vinnuvélum og tækjum (lyftarar, jarðvinnuvélar, kranar, húsalyftur, vinnulyftur, katlar og aðrar tilfallandi vinnuvélar og tæki).Í því felst meðal annars skýrslugerð vegna eftirlits og eftirfylgni með fyrirmælum sem sett eru fram.
- Þátttaka í umbótastarfi og þróun eftirlits með vinnuvélum, húsalyftum og tækjum sem stofnunin sinnir.
- Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu.
- Sinnir verklegum og skriflegum prófum á vinnuvélar og tæki.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, svo sem vélvirkjun, rafvirkjun, bifvélavirkjun, vélfræði eða sambærilegt.
- Sérhæfð reynsla sem nýtist í starfi, svo sem vinna við stjórnun og viðgerðir vinnuvéla.
- Sérhæfð þekking sem nýtist við skoðanir og eftirlit.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
- Góð enskukunnátta skilyrði.
- Rík þjónustulund.
- Frumkvæði og framsýni.
- Mikil hæfni í samskiptum.
- Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur.
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur24. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Staðsetning
Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Húsumsjón
Eignaumsjón hf
Þjónustufulltrúi á þjónustuvakt
Veitur
Starfsmaður á vélaverkstæði
Eimskip
Bifvélavirki / Mechanic
Lotus Car Rental ehf.
Rafvirki
Securitas
Bifvélavirkjar / Mechanics
Bílaumboðið Askja
Vélvirkjar/ Vélstjórar
HD
Bifvélavirki
Toyota
Mechanic / Bifvélavirki
Campeasy
Tæknimaður-PLC sérfræðingur
Skaginn 3X ehf.
Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates
Skoðunarmaður- Frumherji á Egilsstöðum
Frumherji hf