

Viltu taka þátt í að byggja upp nýjan leikskóla?
Leikskólinn Sumarhús, nýr leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa. Leitað er að lausnamiðuðum og drífandi einstaklingum með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.
Í leikskólanum sem verður fimm deilda er gert ráð fyrir 150 börnum á aldrinum 1-5 ára og mun skólinn starfa eftir heilsustefnunni þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls verður í forgrunni. Sköpun og leikurinn eru einnig mikilvægur hlekkur í starfinu og er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling til að koma að þróun leikskólans frá upphafi.
- 
Vinnur að uppeldi og menntun barnanna, fylgist með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega 
- 
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra 
- 
Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra 
- 
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/ forráðamenn barnanna 
- 
Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra 
- 
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum. 
- 
Tekur þátt í teymisvinnu innan skólans. 
- 
Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi 
- 
Reynsla af leikskólastarfi 
- 
Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót 
- 
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 
- 
Góð íslenskukunnátta er skilyrði. 
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
 Ісландська
Ісландська










