

Viltu selja virði?
Hefur þú brennandi áhuga á tæknilausnum og getur átt árangursrík samtöl við fyrirtæki um stafræna umbreytingu? Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum söluráðgjafa.
Hefur þú áhuga á upplýsingatækni og vilt hjálpa fyrirtækjum að nýta hana til að ná árangri? Hugbúnaðarlausnir Advania leita að kraftmiklum söluráðgjafa til að taka virkan þátt í sölustarfi þar sem nýjar lausnir, góð þjónusta og þekking á viðskiptum skipta öllu máli.
Þú munt vinna náið með viðskiptavinum, ráðgjöfum og birgjum til að finna og útfæra réttu lausnirnar. Ef þú hugsar í lausnum, átt auðvelt með að mynda traust sambönd og hefur áhuga á því hvernig tækni getur skapað virði — þá viljum við heyra frá þér!
Ábyrgðarsvið
- Kynning og sala lausna í samræmi við þarfir viðskiptavina
- Undirbúningur og framkvæmd kynninga, tilboðsgerð og samningaviðræður
- Öflun traustra viðskiptasambanda
- Náin samvinna með birgjum, lausnasérfræðingum, stjórnendum og öðrum innan Advania
- Þátttaka og samræming markaðsstarfs
- Fylgjast með þróun á markaði og stuðla að markvissri framsetningu lausna
Hugbúnaðarlausnir Advania
Hjá Hugbúnaðarlausnum starfar öflugur hópur sérfræðinga sem aðstoðar stærri fyrirtæki og stofnanir við að ná árangri með samþættum upplýsingatæknilausnum. Við bjóðum bæði eigin lausnir og lausnir frá alþjóðlegum leiðandi aðilum eins og Salesforce, Oracle og IBM.
Þekking og reynsla
- Hefur auga fyrir því hvernig tæknin getur skilað virði og árangri
- Frábær samskiptafærni
- Reynsla af sölu eða ráðgjöf í tengslum við upplýsingatækni eða stafrænar lausnir er kostur en ekki krafa
- Drifkraftur og sjálfstæði í starfi
- Gott vald á íslensku og ensku
Við bjóðum
- Tækifæri til vinna með beittu teymi sölusérfræðinga og reynslubolta í upplýsingatækni
- Spennandi starfsvettvang þar sem markmið okkar er að skapa verðmæti með snjallri notkun upplýsingatækni
- Sterka liðsheild þar sem fagmennska, metnaður og jákvæð menning ríkir
Hjá okkur færðu tækifæri til að veita framúrskarandi þjónustu byggða á djúpri þekkingu ásamt fjölbreyttu úrvali af viðurkenndum lausnum. Komdu í okkar metnaðarfulla lið þar sem nýsköpun, fagmennska og hágæða þjónusta ráða ríkjum.
Vinnustaðurinn Advania
Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.
Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.
Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni.
Ferli ráðninga
- Tekið á móti umsóknum til 15. júní 2025
- Yfirferð umsókna
- Boðað í fyrstu viðtöl
- Boðað í seinni viðtöl
- Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
- Öflun umsagna / meðmæla
- Ákvörðun um ráðningu
- Öllum umsóknum svarað
Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar Björnsson, forstöðumaður Hugbúnaðarlausnasölu, [email protected] / 4409000













