Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Viltu hafa áhrif á framtíð kennslu í STEM-greinum?

Háskólinn í Reykjavík leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf til að leiða þróun náms í kennslufræði STEM greina, auk kennslu og/eða rannsókna á því sviði. Í boði er spennandi starf í framsæknu og lifandi háskólaumhverfi.

STARFSSVIÐ

  • Hönnun og þróun á námi í kennslu STEM greina (s.s. raunvísindi, tækni, verkfræði og náttúruvísindi) á grunn- og framhaldsskólastigi.
  • Kennsla og/eða rannsóknir í kennslufræði og þá sérstaklega STEM greina.
  • Fagleg ráðgjöf við þróun kennsluhátta í STEM greinum (náms og kennslu) á öllum skólastigum.

HÆFNISKRÖFUR

  • Meistarapróf í kennslufræði er nauðsynlegt.
  • Háskólapróf í STEM grein og doktorspróf æskilegt.
  • Reynsla af kennslu og þróun náms á grunn- og framhaldsskólastigi er æskileg.
  • Þekking og reynsla af rannsóknum er æskileg.
  • Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði.
  • Frumkvæði í starfi ásamt skipulagshæfni og faglegum vinnubrögðum.
  • Teymishugsun, lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Gott vald á íslensku og/eða ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026. Með öllum umsóknum skal fylgja ferliskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur rökstyðja ástæður þess að vera rétta manneskjan í starfið.

Nánari upplýsingar veitir dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni við Háskólann í Reykjavík ([email protected]) eða mannauðsdeild ([email protected]). Eingöngu þær umsóknir sem berast í gegnum umsóknarvef HR eru teknar til greina. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Реклама створена 12. February 2026
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи