Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Verkefnastjóri í teymi stefnu og árangurs

Samgöngustofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan og faglegan verkefnastjóra í teymi stefnu og árangurs. Leitað er að einstaklingi með reynslu af verkefnastjórnun og umbótastarfi sem hefur áhuga á að innleiða stefnu, efla verkefnastjórnun og styrkja gagnadrifna ákvarðanatöku innan stofnunarinnar. Starfið hentar vel þeim sem vilja leiða krefjandi verkefni, bæta heildarsýn á rekstur og vinna náið með stjórnendum og starfsfólki að því að styrkja framkvæmd og árangur Samgöngustofu.

Starfshlutfall er 100%.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiða og fylgja eftir stefnumótun og markmiðasetningu Samgöngustofu.
  • Verkefnastýra stærri verkefnum innan stofnunarinnar og tryggja heildstæða, samhæfða og árangursríka framkvæmd þeirra.
  • Innleiða og styðja við verkefnastjórnun með skýrum ferlum, verkfærum og fræðslu.
  • Greina umbótatækifæri og leiða breytingar í samstarfi við stjórnendur og gæða- og umbótadeild.
  • Skilgreina og viðhalda árangursvísum sem endurspegla stefnu og markmið stofnunarinnar og tryggja að rekstur og ákvarðanataka byggi á áreiðanlegum og traustum gögnum.
  • Stuðla að markvissri nýtingu gagna í umbótaverkefnum og þróun stefnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkefnastjórnun, viðskiptafræði, verkfræði, opinberri stjórnsýslu eða tengdum greinum. Gerð er krafa um BA/BS gráðu.
  • Reynsla af verkefnastjórnun, þar á meðal að leiða og stýra verkefnum af mismunandi stærð og flækjustigi.
  • Reynsla eða þekking á stefnumótun og innleiðingu stefnu.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að vinna að umbótum í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.
  • Hæfni til að vinna með árangursvísa og mælikvarða, skilja hlutverk þeirra í árangursstjórnun og meta niðurstöður í samhengi við rekstur og markmið.
  • Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni og hæfni til að vinna þvert á teymi og svið.

Við leitum að einstaklingi sem…

  • er lausnamiðaður og áhugasamur um að þróa og efla starfsemi,
  • hefur sterka hæfni í samstarfi og getur byggt upp traust og gott samstarf,
  • hefur áhuga á að koma að mótun og framkvæmd stefnu á breiðum grunni,
  • vill leggja sitt af mörkum til að styrkja stjórnun og árangur Samgöngustofu.
Реклама створена 12. February 2026
Кінцевий термін подання заявки23. February 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Тип роботи
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи