
Umhverfis- og skipulagssvið
Á Umhverfis og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem eiga að auðga mannlífið í borginni.
Nánar má lesa um sviðið hér: https://reykjavik.is/umhverfis-og-skipulagssvid
Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs býr yfir einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir og gegnir lykilhlutverki í því að gera Reykjavík að enn betri borg. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg.

Verkefnastjóri á deild gatna, lóða og opinna svæða
Umhverfis- og skipulagssvið leitar að drífandi einstaklingi í stöðu verkefnastjóra á deild gatna, lóða og opinna svæða. Verkefnin krefjast mikillar þverfaglegrar samvinnu bæði innan fagsviða Reykjavíkurborgar sem og annarra hagsmunaaðila. Verkefni deildarinnar eru meðal annars að hafa yfirumsjón með nýframkvæmdum, s.s. uppbyggingu íbúðahverfa og atvinnusvæða, viðhaldi og eflingu göngu- og hjólastígakerfis borgarinnar og endurgerð leik- og grunnskólalóða. Verkefnin eru afar fjölbreytt og með tengingu við Græna Planið, heildarstefnu borgarinnar í fjárfestingum og lykilverkefnum í borgarumhverfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórnun, skipulagning og stjórnun verkefna.
- Gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana, ásamt eftirfylgni framkvæmda og útboðsverka.
- Skoðun, yfirferð og samþykkt reikninga frá ráðgjöfum, verktökum og vegna aðkeypts efnis.
- Skoðun á stöðu einstakra verkefna í verkbókhaldi.
- Ábyrgð á úttektum, uppgjöri og gerð skilamats vegna framkvæmda.
- Samskipti/samráð við íbúa, hagsmunaðila, ráðgjafa, stofnanir, nefndir og ráð, skrifstofur og deildir innan og utan borgarkerfis um framkvæmdir einstakra verkefna.
- Upplýsingaveita um stöðu verkefna í gegnum Framkvæmdasjá, sem er opin almenningi til að miðla upplýsingum til íbúa og hagsmunaaðila.
- Vinna við hönnun, val á búnaði eins og við á, fyrir stofnanir og/eða opin leiksvæði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verk- eða tæknigreinum, byggingarfræði, arkitektúr, skipulagsfræða, landslagsarkitektúr eða á sviði umhverfisfræða.
- Framhaldsmenntun tengd málaflokki.
- Samskiptahæfni sem miðar að því að starfa í hóp og verkefnateymum.
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Haldbær reynsla af starfssviðinu kostur.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð. Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum og miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á algengum skrifstofu-, hönnunar- og teikniforritum.
- Íslenskukunnátta B2-C1 og enskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
Реклама створена 17. April 2026
Кінцевий термін подання заявки26. April 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Англійськавимагається
Розташування
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Тип роботи
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (2)
Схожі вакансії (12)

Byggingafræðingur / Byggingatæknifræðingur
Verksýn

Vörustjóri hugbúnaðarlausna
Landspítali

Nýr Landspítali - Verkefnastjóri á framkvæmdasviði
Nýr Landspítali ohf.

Project controller
COWI

Financial Data Analyst / Gagnagreinandi
Crowberry Capital

Verkefnastjóri viðhalds og framkvæmda
Kaldalón

Teymisstjóri í byggingardeild
Umhverfis- og skipulagssvið

Tækniteiknari/lagnahönnuður á lagnasvið
NNE Verkfræðistofa ehf

Sérfræðingur í yfirsýn fjármálainnviða
Seðlabanki Íslands

Framkvæmdastjóri
Malbikstöðin

Sérfræðingur í áætlanagerð og kostnaðargreiningum
FSRE

Hönnuður burðarvirkja
NNE Verkfræðistofa ehf