Þjónustu- og skrifstofufulltrúi
SOS Barnaþorpin sjá foreldralausum börnum víða um heim fyrir fjölskyldu og góðri æsku. Fjöldi Íslendinga styrkir starf samtakanna og viljum við þjónusta þá vel. Leitum við nú eftir drífandi einstaklingi sem brennur fyrir mannúðarmál, nýtur sín í mannlegum samskiptum og er töluglöggur. Um er að ræða 100% starf á skrifstofu samtakanna að Hamraborg 1 í Kópavogi.
· Símsvörun og móttaka
· Samskipti við styrktaraðila (sími, tölvupóstur og bréf)
· Skráning á styrkjum í CRM styrktaraðilakerfi
· Samskipti við alþjóðlegar höfuðstöðvar samtakanna
· Afstemmingar á bankareikningum
· Kröfu- og boðgreiðslustofnanir
· Almenn skrifstofustörf og ýmis tilfallandi verkefni
· Rík þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
· Góð almenn tölvuþekking, einkum á Excel
· Gott vald á íslensku og ensku
· Nákvæmni og tölugleggni
· Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
· Reynsla af afstemmingum er kostur
· Þekking á CRM kerfum er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 25. september. Umsókn sendist á umsokn@sos.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir þeirri hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Schram framkvæmdastjóri í síma 564 2910.