Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.000 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Þú ert á góðum stað eru kjörorð sveitarfélagsins.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.
Stuðningur við fötluð börn óskast í vetrarfrístund í Fjarðab
Fjarðabyggð óskar eftir að ráða stuðningsaðila með fötluðum börnum í Fjarðabyggð. Starfið í vetrarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Frístundin er fyrir börn sem voru 1. - 10. Bekk. Stuðningsaðili veitir félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við fötluð börn í vetrarfrístund. Vetrarfrístund er opin frá kl. 08:00 til 16:00 einstaka daga í vetrar- og jólafríum í Neskaupstað, á Eskifirði og Reyðarfirði.
Möguleiki er á öðrum störfum hjá Fjarðabyggð ef þess er óskað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfsmaður sinnir stuðning sem einstaklingur þarf á að halda og þeirra þörfum í frístundastarfi.
- Leiðbeina einstakling í leik og starfi í vetrarfrístund.
- Hjálpa einstakling við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
- Aðstoða einstakling í kaffitímum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi æskileg.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Metnaður og dugnaður.
Реклама створена 16. September 2024
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
ІсландськаВисокий
Тип роботи
Підходить для
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (9)
Deildarstjóri sérkennslu við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Frístundarleiðbeinandi í félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð
Frístundarleiðbeinendur við frístundaheimili á Reyðarfirði
Fjarðabyggð
Deildarstjóri frístunda barna og unglinga
Fjarðabyggð
Slökkviliðsstjóri slökkviliðs Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð
Leikskólakennarar Leikskólann Lyngholt
Fjarðabyggð
Þroskaþjálfi við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Stuðningsfulltrúi við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Frístundaleiðbeinandi við Eskifjarðarskóla
Fjarðabyggð
Схожі вакансії (12)
Frístundaleiðbeinandi með stuðning
Hrafninn frístundaklúbbur
Skemmtilegt starf á Íbúðarkjarna í Breiðholti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Kona sem kann prjón eða hekl óskast á kvöld og helgarvaktir
NPA miðstöðin
Flokkstjóri í heimaþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær
Aðstoð í eldhúsi / Kitchen assisant
Grillmarkaðurinn ehf.
Starfsmaður í skammtímadvöl - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær
Frábær aðstoðarkona óskast í Hafnarfjörðinn
NPA miðstöðin
Vilt þú hjálpa okkur að hjálpa öðrum?
Samhjálp
Stuðningsfulltrúi
Sólheimar ses
Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin
Starfsmaður í umönnun - Dagvaktir
Sóltún hjúkrunarheimili