Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Laus er til umsóknar staða stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Um hlutastörf er að ræða sem eru um 70% hver. Staðan er laus frá og með 1.ágúst nk. Leitað er að stuðningsfulltrúa með starfshæfni til að starfa með nemendum á með sértæka námsörðugleika á yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi. Mikilvægt er að umsækjandi geti starfað á öllum stigum. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru ,,ánægja, ábyrgð, árangur". Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv.?Evrópska tungumálarammanum
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Ábyrgð í starfi og stundvís
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfileikar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Aðstoðar nemendur og reynir að ýta undir færni og sjálfstæði þeirra.
  • Vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði kennara, deildarstjóra sérkennslu og annarra ráðgjafa.
  • Gæsla nemenda í forföllum kennara.
  • Situr fag-, teymis- og foreldrafundi eftir því sem við á.
  • Þátttaka í starfi grunnskóla í samráði og að óskum skólastjóra.
Реклама створена 6. May 2025
Кінцевий термін подання заявки20. May 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Тип роботи
Професії
Мітки роботи