Heimaþjónusta Fjarðabyggðar
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingum í heimaþjónustu í Fjarðabyggð. Að öllu jafna er inni á heimilum og eftir þjónustusamningum hvers og eins þjónustuþega, staðsetningin er því breytileg. Um er að ræða framtíðarstörf í heimaþjónustu og möguleiki er á mismunandi starfshlutfalli. Í boði er dagvinna á Reyðarfirði, Eskifirði og í Neskaupstað, auk helgarvinnu í Neskaupstað. Við hvetjum áhugasama til að hafa samband og kynna sér fjölbreytt og gefandi störf í heimaþjónustu.

Starfsmaður í heimaþjónustu starfar eftir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglum Fjarðabyggðar um stuðningsþjónustu. Markmiðið heimaþjónustu er að styðja eldra fólk til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lögð er áhersla á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Félagslegt innlit og stuðningur
  • Aðstoð við heimilishald, svo sem daglegar athafnir, innkaup, virkni og fl.
  • Veita persónulega aðstoð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
  • Gerð er krafa um að starfsmenn tali og skilji íslensku
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð
  • Gerð er krafa um bílpróf og eigin bíl til afnota 
Реклама створена 2. September 2026
Кінцевий термін подання заявки14. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
Розташування
Skólavegur 69, 750 Fáskrúðsfjörður
Mýrargata 18, 740 Neskaupstaður
Eskifjörður , 735 Eskifjörður
Búðareyri 2, 730 Reyðarfjörður
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ЧесністьPathCreated with Sketch.Судимості немаєPathCreated with Sketch.КреативністьPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.Водійські праваPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Догляд (діти/люди похилого віку/інваліди)PathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтівPathCreated with Sketch.Терпіння
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи