
Málmsteypan
Málmsteypan er elsta starfandi endurvinnsla landsins og á sér yfir 80 ára sögu. Á þeim tíma hefur fyrirtækið þróast í takt við þarfir samfélagsins og er í dag eina járnsteypan á Íslandi og traustur samstarfsaðili í fráveitulausnum og innviðaverkefnum.
Kjarnastarfsemi Málmsteypunnar er að bjóða heildarlausnir í fráveitu. Við flytjum inn og seljum rör, brunna og tengihluti sem standast íslenskar aðstæður og endast í yfir 100 ár, samhliða okkar eigin framleiðslu á hágæða steypujárnsvörum þar sem brotajárn sem fellur til hérlendis er endurunnið í endingargóðar vörur.
Við störfum náið með verktökum, sveitarfélögum og byggingaraðilum um allt land og erum stolt af því að lausnir okkar liggi undir mörgum af stærstu framkvæmdum landsins. Sjálfbærni, áreiðanleiki og þjónusta eru leiðarljós okkar þegar við byggjum upp innviði framtíðar á Íslandi.

Starfsmaður óskast í vöruafgreiðslu hjá Málmsteypunni
Starfsmaður óskast í afgreiðslu og vöruafhendingu hjá Málmsteypunni
Hjá Málmsteypunni trúum við því að góð þjónusta, áreiðanleiki og samvinna séu grunnurinn...
Við leitum nú að starfsmanni í afgreiðslu og vöruafhendingu sem vill verða mikilvægur hluti af öflugu teymi og gegna lykilhlutverki í daglegu flæði fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað fyrir góðu viðmóti, þjónustu, skipulagi og vönduðum vinnubrögðum, getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð í starfi. Jafnframt er mikilvægt að viðkomandi eigi auðvelt með samstarf og geti tekist á við fjölbreytt verkefni, jafnvel þegar mikið er að gera.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla pantana af lager
- Vörumóttaka
- Áfylling á millilagera
- Tiltekt, þrif og viðhald lagers
- Akstur
- Skráning
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vinnuvélaréttindi er plús
- Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf
- Stundvísi, nákvæmni og áreiðanleiki
- Góð öryggis-, gæða og umhverfisvitund
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
Реклама створена 13. May 2026
Кінцевий термін подання заявки31. May 2026
Мовні вимоги
ІсландськаOptional
Англійськавимагається
Розташування
Miðhraun 6, 210 Garðabær
Тип роботи
Навички
Оформлення замовленнь кліентівУправління стокомРобота на складі
Професії
Мітки роботи
Схожі вакансії (12)

Starfsfólk í fiskvinnslu
KAT ehf

Útkeyrsla og lager
Ofar

Sumarstarf í verslun á Akureyri
Þór hf

Bílstjóri í aksturs og þjónustustarfs
Linde Gas ehf

Umsjónarmaður vöruafgreiðslu
Pósturinn

Lagerstarf
Ísfell

Sumarstarf í útibúi Olís á Akureyri
Olís ehf.

Afgreiðsla - Lager Vöruhús
Vatnsvirkinn ehf

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - sumarstarf
DHL Express Iceland ehf

Bílstjóri sumarstarf - Keflavíkurflugvöllur
DHL Express Iceland ehf

Hópstjóri vörumóttöku
BAUHAUS slhf.

Warehouse Stocker Vacancy (Merch)
Costco Wholesale