
Norðurorka hf.
Norðurorka hf. rekur fjölbreytta veitustarfsemi á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu.
Meginhlutverk fyrirtækisins er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreifingu á heitu vatni og neysluvatni, rekstri dreifikerfis raforku og rekstri fráveitu.
Norðurorka hf. er reyklaus vinnustaður og starfar skv. vottuðu gæðakerfi (ISO 9001).

Starfsmaður í Fráveitu
Norðurorka óskar eftir laghentum og úrræðagóðum snyrtipinna í fjölbreytt starf við fráveitukerfi Akureyrar.
Fráveitukerfið er viðamikið og markvisst hefur verið unnið að uppbyggingu þess, m.a. með byggingu fjölda dælustöðva, yfirfallsstöðva og lagningu þrýstilagnar meðfram strandlengjunni að nýrri útrás við Sandgerðisbót.Hreinsistöðin er með þeim stærri á landinu. Hún og fráveitukerfið í heild sinni eru tæknivædd með eftirlitskerfi.
Starfið er á framkvæmdasviði og næsti yfirmaður er verkstjóri framkvæmdaþjónustu
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og eftirlit með hreinsistöð ásamt fráveitukerfi
- Umsjón og eftirlit með dælustöðvum fráveitu
- Umsjón og eftirlit með vinnu verktaka í fráveitukerfum
- Sýnataka í hreinsistöð fráveitu
- Sýnataka í sjó á völdum stöðum
- Samskipti við viðskiptavini og verktaka
- Aðstoð við umhirðu varaaflstöðva til rafmagnsframleiðslu
- Önnur verk er til falla og yfirmaður ákveður
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Iðnmenntun eins og vélvirkjun eða vélfræði er kostur
- Almenn ökuréttindi
- Góð tölvu- og tæknikunnátta
- Góð íslenskukunnátta
- Þekking á viðhaldskerfum er kostur
- Reynsla af veitukerfi er kostur
- Reynsla af jarðlagnatækni er kostur
- Dugnaður, frumkvæði og jákvæðni
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Íþrótta- og líkamsræktarstyrkur
- Símtækjastyrkur
- Niðurgreitt mötuneyti
Реклама створена 22. May 2026
Кінцевий термін подання заявки9. June 2026
Мовні вимоги
Ісландськавимагається
Розташування
Rangárvellir 4, 603 Akureyri
Тип роботи
Навички
Водійські права категоріі Б (B)Загальні знання комп’ютераПроактивнийПозитивністьЛюдські стосункиНезалежність
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи
Більше робочих місць (1)
Схожі вакансії (12)

Starfsmaður í malbikun og vörubílaakstur
Malbikstöðin

Starfsmaður á Laser og samsetningu.
Signa ehf

Rannsókn og hjólaskófla - Selfoss
Steypustöðin

Verkstjóri óskast
Verkvík-Sandtak ehf

Smiðir eða vant iðnaðarfólk óskast
Verkvík-Sandtak ehf

Starfsmaður á þjónustuverkstæði Sindra, Kópavogi.
SINDRI

Viltu taka þátt í byggingu Nýju Ölfusárbrúarinnar?
ÞG Verk

Vélvirki - Vélfræðingur - Vélstjóri
Rúko hf

Verkamaður/Worker
Jarðtækni

Meiraprófsbílstjóri óskast Framtíðarstarf.
Jarðtækni

Óskum eftir starfsfólki í framleiðsludeild
Trefjar ehf

VERKSTÆÐISFORMAÐUR
RST Net ehf.