Frumherji hf
Frumherji hf
Frumherji hf

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Reykjanesi

Skoðunarmaður

Frumherji óskar eftir hæfileikaríkum og metnaðarfullum bifvélavirkja, vélvirkja eða bifreiðasmið til starfa á skoðunarstöð á Reykjanesi. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér bifreiðaskoðanir, endurmenntun og starfsréttindi sem skoðunarmaður.

Við bjóðum upp á

  • Þægileg innivinna við góðar aðstæður
  • Starfið er lifandi og spennandi þar sem unnið er við fjöbreyttar bifreiðaskoðanir fyrir frábæra viðskiptavini
  • Góða starfsmannaaðstöðu
  • Öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur fjölbreytta viðburði og félagsstarf
  • Fjölskylduvænan vinnustað

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á tækni og nýjungum, sem langar að starfa með sterku liði sérfræðinga þar sem miklir möguleikar eru á endurmenntun og þjálfun.

Vinnutími

Mánudaga - fimmtudaga kl. 8.00-16.30 Föstudaga kl. 8.00-16:00

Við hvetjum alla sem uppfylla hæfnikröfur að sækja um óháð kyni.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigurður í tölvupósti [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast skoðun ökutækja
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Skráningar í tölvu
  • Eftirlit með tækjum og húsnæði
  • Sækja endurmenntun og faglega þjálfun
  • Þátttaka í öðrum tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Réttindi í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða bifreiðasmíði
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
  • Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
  • Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi

Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Frumherja

  • Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins
  • Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
  • Styrkir til meiraprófs
  • Gott starfsumhverfi
  • Góður starfsandi og öflugt starfsmannafélag
  • Þjálfun og réttindi frá Samgöngustofu til skoðunar á bifreiðum
Реклама створена 19. September 2025
Кінцевий термін подання заявки19. October 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Njarðarbraut 7, 260 Reykjanesbær
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.Водійські праваPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.Ліцензія підмастеряPathCreated with Sketch.Командна роботаPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи