Grindavíkurbær
Grindavíkurbær
Grindavíkurbær

Starfsfólk í íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar

Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar auglýsa eftir öflugu og þjónustulunduðu starfsfólki í störf sundlaugarvarða. Um er að ræða fjögur störf í vaktavinnu, og er starfshlutfall allt að 80%. Gert ráð fyrir ráðningu frá 1. ágúst 2026.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og geta staðist þolpróf/hæfnispróf sundlaugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.

Við leitum að starfsfólki sem getur unnið vel í síbreytilegu umhverfi og hefur mikla og ríka öryggisvitund. Mikilvægt er að starfsfólk hafi hag heildarinnar að leiðarljósi og vilja til að taka þátt í næstu skrefum í endurreisn bæjarins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Öryggisgæsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
  • Klefavarsla fyrir íþróttahús og sundlaug
  • Almenn þrif
  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini og notendur íþróttahúss/sundlaugar
  • Vinna á kappleikjum og öðrum viðburðum
  • Önnur tilfallandi verkefni við íþróttamannvirki
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Mikil öryggis vitund
  • Uppbyggileg og árangursrík samskiptahæfni
  • Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð nálgun
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp
  • Góður liðsmaður sem hefur hag heildarinnar að leiðarljósi
  • Ábyrgðarkennd og jákvætt viðmót
  • Góð íslenskukunnátta, enskukunnátta æskileg
  • Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  • Hafa náð 20 ára aldri
Реклама створена 22. May 2026
Кінцевий термін подання заявки7. June 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Високий
АнглійськаАнглійська
Optional
Високий
Розташування
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Плавання
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи