Ríkisendurskoðun
Ríkisendurskoðun

Starf endurskoðanda

Ríkisendurskoðun leitar að öflugum liðsauka í fjárhagsendurskoðun. Um er að ræða fjölbreytt verkefni við endurskoðun ríkisreiknings og reikninga ríkisaðila sem eru unnin bæði sjálfstætt og í teymum.

Starf endurskoðanda heyrir undir fjárhagsendurskoðunarsvið og eru starfsstöðvar embættisins í Reykjavík og á Akureyri.

Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis og er trúnaðarmaður þess samkvæmt lögum nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Hlutverk Ríkisendurskoðunar er að hafa eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins og að fjármunum sé ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt í samræmi við ákvarðanir Alþingis.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Endurskoðun ríkisreiknings og reikninga ríkisaðila
  • Eftirlit með nýtingu og meðferð opinbers fjár
  • Könnun á innra eftirliti stofnana og virkni þess
  • Úttektir á fjárhagsmálefnum ríkisstofnana og ríkisaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilding í endurskoðun
  • Reynsla af endurskoðunarstörfum
  • Hæfni til að leiðbeina og stýra verkefnum
  • Þekking á alþjóðlegum endurskoðunar- og reikningsskila­stöðlum
  • Þekking á lögum nr. 123/2015 um opinber fjármál
  • Reynsla og/eða þekking á rekstri og fjármálastjórn hins opinbera er kostur
  • Þekking á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Grunnkröfur fyrir öll störf hjá Ríkisendurskoðun
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Metnaður og vilji til að ná árangri í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð skipulagshæfni og nákvæmni
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Góð almenn tölvukunnátta
Реклама створена 25. September 2026
Кінцевий термін подання заявки13. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
вимагається
Досконалий
Розташування
Bríetartún 7, 105 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Дипломований бухгалтер
Професії
Мітки роботи