
Sölustjóri
Viltu leiða vöxt Kling á Íslandi?
Kling er íslenskt greiðslutæknifyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum á Íslandi að taka við greiðslum á einfaldari, hraðari og snjallari hátt.
Vörur okkar eru þegar farnar að skapa raunverulegt virði fyrir fyrirtæki. Við höfum byggt öflugt sjálfsafgreiðslukerfi fyrir nýja viðskiptavini sem gerir fyrirtækjum kleift að komast hratt af stað, en nú ætlum við að taka næsta skref.
Við leitum að sölustjóra sem vill hjálpa okkur að vaxa á íslenskum markaði, sérstaklega í enterprise sölu og stærri samningum. Þetta er tækifæri fyrir manneskju sem kann að opna dyr, byggja tengsl, skilja þarfir stærri fyrirtækja og koma öflugri tæknilausn í rétt samhengi fyrir rétta viðskiptavini.
Hjá Kling kemur þú ekki inn í ómótaða hugmynd. Þú kemur inn í tilbúna vöru, skýra þörf á markaði og lítið, hraðskreitt teymi sem vill vinna hratt en faglega. Þú munt hafa lykilhlutverk í að móta sölustefnu Kling, byggja upp söluferla, vinna með stærri viðskiptavinum og hjálpa fyrirtækjum, einyrkjum og klúbbum á Íslandi að einfalda greiðslur, rukkanir og áskriftir.
Við erum að leita að drífandi, sjálfstæðum og viðskiptasinnuðum einstaklingi sem á auðvelt með að setja sig inn í mismunandi rekstrarumhverfi, skilja ólíkar þarfir fyrirtækja og móta Kling að hverju sölutækifæri fyrir sig. Viðkomandi þarf að hafa sterka stafræna vöruvitund, skilja hvernig góðar tæknilausnir skapa virði og geta komið því skýrt til skila í samtali við stjórnendur, eigendur og sérfræðinga.
Ісландська
Англійська










