

Söluráðgjafi með iðnþekkingu
Skanva.is leitar að reyndri og öflugri sölumanneskju í frábært teymi okkar á Íslandi.
Um er að ræða starf við tilboðsgerð og ráðgjöf er varðar sérsmíðaða glugga og hurðir, bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Sýningarsalur okkar í Mörkinni er opinn alla virka daga á milli 9 og 16 og þar tökum við vel á móti viðskiptavinum okkar í kaffibolla og gluggaspjall 🙂
Við leggjum mjög mikið upp úr því að veita viðskiptavinum okkar góða og skilvirka þjónustu og leitum því að mjög samviskusömum einstaklingi með framúrskarandi samskiptafærni.
Starfsfólk Skanva fær að sérhæfa sig í verkefnum sem hæfa persónulegum styrkleikum þeirra og fá þannig tækifæri til að vaxa í starfi.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Harpa. Tölvupóstur: [email protected] - Sími: 5588400
Ráðgjöf við viðskiptavini
Símsvörun
Taka á móti gestum í sýningarsal
Tilboðsgerð
Samskipti við verksmiðju
Sala og eftirfylgni
Taka þátt í þróun vefverslunar okkar og gera hana notendavænni fyrir íslenskan markað
Reynsla af sölu í byggingariðnaði kostur
Mikill kostur ef viðkomandi hefur einhvers konar verkmenntun
Mjög góð þjónustulund
Frábær samskiptahæfni - kurteisi og jákvæðni
Samviskusemi
Góð tölvukunnátta
Skilyrði að viðkomandi hafi góða íslensku- og enskukunnáttu
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst, en við erum þó tilbúin til að bíða eftir rétta einstaklingnum.
Góður vinnutími
Skemmtilegt og samheldið teymi vinnufélaga
Þægilegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
Tölva og sími
Endurmenntunar- og námskeiðsstyrkir til að efla hæfni starfsfólks














