Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Söluráðgjafi glugga- og sérlausna

Við leitum að öflugum, jákvæðum og drífandi sölumanni í teymið okkar í álgluggum og sérlausnum.Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir sölu, er óhræddur við að taka frumkvæði og sækir tækifærin af krafti frekar en að bíða eftir að hlutirnir gerist. Ef þú hefur gaman af því að byggja upp öflug tengsl við viðskiptavini, veita faglega ráðgjöf og vinna sjálfstætt í líflegu umhverfi – þá viljum við fá þig í lið með okkur!Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni.

  • Frumkvæði og drifkraftur: Þú ert mætt/ur til að ná árangri, sækir verkin, fylgir tækifærum eftir og lokar samningum.
  • Gleði og jákvæðni: Þú smitar út frá þér góðri orku, ert lausnamiðuð/aður og skapar góða stemningu í samskiptum.
  • Fagmennska: Þú veitir framúrskarandi þjónustu, setur þig vel inn í sérlausnir og þarfir viðskiptavina og skilar vandaðri vinnu.
  • Tengslamyndun: Þú ert lagin/n við að byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við verktaka, húsbyggjendur og önnur fyrirtæki.
  • Sjálfstæð vinnubrögð: Þú skipuleggur þinn eigin vinnudag vel, tekur ákvarðanir og berð ábyrgð á þínum árangri.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf, sala og þjónusta á álgluggum og sérlausnum til einstaklinga og fyrirtækja.
  • Að leita uppi ný tækifæri og byggja upp nýja viðskiptavild.
  • Tilboðsgerð, eftirfylgni og samningagerð.
  • Náið samstarf við birgja, verktaka og innri teyma Húsasmiðjunnar.
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, tækni- eða iðnmenntun æskileg
  • Þekking á AutoCad eða sambærilegu æskileg.
  • Reynsla af sölustörfum kostur
  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Almenn tölvukunnátta
Реклама створена 1. October 2026
Кінцевий термін подання заявки15. October 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Рідна мова
АнглійськаАнглійська
вимагається
Високий
Розташування
Skútuvogur 16, 104 Reykjavík
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.Dynamics AXPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.ПродажPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи