NTC ehf
NTC ehf
NTC ehf

Sölufólk óskast í verslanir okkar

Ert þú söludrifin og metnaðarfull manneskja með áhuga á tísku? Þá gæti þetta verið starf fyrir þig.

Við hjá NTC leitum að jákvæðu og þjónustulunduðu fólki til starfa í mörgum af verslunum okkar bæði í fullt starf sem og hlutastarf.

Verslanir sem um ræðir eru GS skór, Companys, Kultur og Outlet-10

Viðkomandi þarf að eiga gott með mannleg samskipti, vera með ríka þjónustulund og jákvætt viðmót. Reynsla af sölustörfum er góður kostur.

Vinnutími er sveigjanlegur og eru ýmsir möguleikar í boði fyrir rétta manneskju. Bæði kyn eru hvött til að sækja um en ætlast er til að viðkomandi sé eldri en 18 ára og tali íslensku.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst!

NTC ehf. er lifandi og fjölbreytt fyrirtæki sem hefur í yfir 45 ár verið leiðandi í innflutningi, framleiðslu og sölu á tískufatnaði á Íslandi. NTC starfrækir 13 verslanir á höfuðborgarsvæðinu, vefverslun, saumastofu og heildsölu. NTC rekur verslanirnar Gallerí Sautján, GS skó, Kultur, Kultur menn, SmashUrban, EVU, GK Reykjavík, Karakter, Companys og Outlet-10 ásamt vefverslunina ntc.is. Meðalfjöldi starfsmanna er um 120.

NTC hefur margoft hlotið viðurkenningar frá VR sem fyrirmyndafyrirtæki og eins viðurkenningar frá CreditInfo sem framúrskarandi fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Sala og góð þjónusta við viðskiptavini
• Almenn sölu- og verslunarstörf
• Samfélagsmiðlar 
• Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi þjónustulund, söluhæfni og jákvætt viðmót
  • Færni í mannlegum samskiptum og vinna vel í teymi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Metnaður til að ná árangri í starfi
  • Reynsla af sölustörfum er góður kostur
Реклама створена 14. September 2026
Кінцевий термін подання заявкиКінцевого терміну немає
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПродажPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Професії
Мітки роботи