Lyfjafræðingafélag Íslands
Lyfjafræðingafélag Íslands
Lyfjafræðingafélag Íslands

Skrifstofustjóri

Lyfjafræðingafélag Íslands (LFÍ) er fag- og stéttarfélag lyfjafræðinga á Íslandi. Félagið vinnur að því að efla faglega stöðu lyfjafræðinga, gæta hagsmuna félagsmanna og standa vörð um réttindi félagsmanna með bættum kjörum og aukinni starfsánægju. Félagið rekur skrifstofu í Lyfjafræðisafninu á Seltjarnanesi og annast fjölbreytt verkefni fyrir félagsmenn, meðal annars fræðslu, félagsstarf og rekstur orlofshúsa og sjóða.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skrifstofustjóri sér um rekstur skrifstofu LFÍ og heildarskipulag félagsstarfsins. Meðal verkefna eru:

  • Daglegur rekstur skrifstofu og utanumhald samkvæmt fjárhagsáætlun
  • Móttaka erinda, svörun tölvupósta og innlend samskipti
  • Umsjón með heimasíðu, Facebook-síðu, Facebook-hópi og Instagram LFÍ
  • Fundarboð, dagskrárgerð, fundarsókn og úrvinnsla funda, m.a. stjórnarfunda, fræðslufunda og aðalfunda
  • Undirbúningur ársskýrslu, ársreikninga, kjörgagna og lagabreytinga fyrir aðalfund
  • Umsjón félagsgagna, félagatals, félagsgjalda og póstlista
  • Umsjón orlofshúsa, úthlutana og tengdra verkefna
  • Utanumhald og umsýsla umsókna sjúkra-, starfsmenntunar- og fræðslusjóðs
  • Aðstoð við fræðslu- og félagsstarf, auglýsingar og skráningu þátttakenda
  • Ýmis verkefni tengd Lyfjafræðisafninu, samskipti við leigjendur og þjónustuaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði rekstrar eða skrifstofuhalds
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni
  • Framúrskarandi þjónustulund og sveigjanleiki í starfi
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt, bera ábyrgð og halda utan um fjölbreytt verkefni
  • Góð tölvukunnátta og áhugi á einföldun ferla með nýtingu tækni og aðstoð gervigreindar
  • Gott vald á íslensku, bæði í ræðu og riti.
  • Lausnamiðað viðhorf og metnaður í starfi
  • Þekking á störfum lyfjafræðinga er kostur
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun innri ferla og skipulag
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og fjölbreytt verkefni
  • Aðgangur að félagslegum viðburðum og fræðslu
  • Samkeppnishæf laun
Реклама створена 30. September 2025
Кінцевий термін подання заявки12. October 2025
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
АнглійськаАнглійська
Optional
Високий
Розташування
Safnatröð 3, 170 Seltjarnarnes
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.CanvaPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Email маркетингPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.Судимості немаєPathCreated with Sketch.КреативністьPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.Людські стосункиPathCreated with Sketch.АмбіціїPathCreated with Sketch.Телефонний зв''язокPathCreated with Sketch.Спілкування електронною поштоюPathCreated with Sketch.СумліннийPathCreated with Sketch.НезалежністьPathCreated with Sketch.ПлануванняPathCreated with Sketch.Обслуговування клієнтів
Робоче середовище
Професії
Мітки роботи