Smáraskóli
Smáraskóli
Smáraskóli

Skólaliði í Smáraskóla

Skólaliði óskast í Smáraskóla frá áramótum

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er staðsettur neðst í Kópavogsdal í fallegu umhverfi nálægt íþróttamannvirkjum og fjölbreyttri og fallegri náttúru. Í skólanum er áhersla á teymiskennslu og gott samstarf nemenda og starfsmanna. Einkunnarorð skólans eru; virðing, vöxtur, viska og víðsýni.

Við Smáraskóla er rekið frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-4. bekk og starfar það samkvæmt stefnu stefnu Kópavogsbæjar um málefni frístunda- og klúbbastarfs þar sem lögð er áhersla á að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Frístundaheimilið er opið eftir að hefðbundnum skólatíma lýkur á daginn, yfirleitt á bilinu kl. 13:30-17, auk þess að vera opið allan daginn í einhverjum tilfellum þá daga sem ekki er kennsla í skólanum.

Starfslýsing

Skólaliði annast létt þrif á húsnæði, aðstoðar nemendur í matsal, sinnir gæslu í frímínútum, og fylgir þeim í sund, íþróttir og vettvangsferðir. Skólaliði sinnir eftirliti með samskiptum nemenda á starfstíma skólans og stuðlar að jákvæðum samskiptum þeirra á milli. Skólaliði getur starfað í frístund eftir hádegi og tekur þar virkan þátt í daglegu skipulagi og framkvæmd á faglegu starfi og hefur umsjón með ákveðnum verkefnum í samstarfi við forstöðumann frístundar og skólastjóra.

Um getur verið að ræða fullt starf eða hlutastarf. Ef um fullt starf er að ræða er vinna á frístundaheimili seinni part dag hluti starfsins

Ráðningartími og starfshlutafall:

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf frá janúarbyrjun 2027

Menntunar- og hæfniskröfur:

Nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu af vinnu með börnum.

  • Reynsla og áhuga á starfi með börnum.
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Vera skipulagður, geta sýnt sjálfstæði og frumkvæði.
  • Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði.
  • Framhaldskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg.

Fekari upplýsingar:

Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Börkur Vígþórsson skólastjóri [email protected] eða í síma 4414800

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðnigarvef alfred.is

Реклама створена 5. November 2026
Кінцевий термін подання заявки20. November 2026
Мовні вимоги
ІсландськаІсландська
вимагається
Досконалий
Розташування
Dalsmári 1, 201 Kópavogur
Тип роботи
Навички
PathCreated with Sketch.ПроактивнийPathCreated with Sketch.ПозитивністьPathCreated with Sketch.Пунктуальність
Підходить для
Професії
Мітки роботи